Enski boltinn

Chelsea mætir Man United í úr­slitum

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Sigurmarkið í uppsiglingu.
Sigurmarkið í uppsiglingu. Barrington Coombs/Getty Images

Chelsea komst í dag í úrslit ensku bikarkeppni kvenna í knattspyrnu með 1-0 sigri á Aston Villa.

Í gær komst Manchester United í úrslit þökk sé dramatískum 3-2 sigri á Brighton & Hove Albion. Man United var mun sigurstranglegra fyrir leik og það voru ríkjandi meistarar Chelsea einnig fyrir leik dagsins.

Það var þó á endanum aðeins eitt mark sem skildi liðin að. Það skoraði hin magnaða Sam Kerr með góðum skalla eftir sendingu Guro Reiten þegar tæp klukkustund var liðin af leiknum.

Mörkin urðu ekki fleiri og Chelsea vann 1-0 sigur sem þýðir að liðið getur varið bikartitil sinn fari svo að það leggi Man United að velli í úrslitum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×