Enski boltinn

Dramatískur sigur Man United sem skreið í úrslitaleikinn

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Man United er komið í úrslit ensku bikarkeppninnar.
Man United er komið í úrslit ensku bikarkeppninnar. Manchester United

Manchester United er komið í úrslit ensku bikarkeppninnar í knattspyrnu eftir dramatískan 3-2 sigur á Brighton & Hove Albion.

Fyrir leik var talið að Man United myndi vinna öruggan sigur enda liðið í titilbaráttu á meðan Brighton berst á honum enda töflunnar. Það kom því á óvart þegar gestirnir tóku forystuna þegar Mary Earps, markvörður Man Utd, varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark á 36. mínútu.

Reyndist það eina mark fyrri hálfleiks og þurftu heimakonur að taka sig til í andlitinu í hálfleik. Sem þær og gerðu en Leah Galton jafnaði metin strax í upphafi síðari hálfleiks.

Alessia Russo kom svo Man Utd yfir þegar 20 mínútur lifðu leiks en Danielle Carter jafnaði um hæl og staðan jöfn 2-2 þegar stundarfjórðungur lifði leiks. 

Rachel Williams kom inn fyrir Russo skömmu síðar og reyndist hún hetja Man United þegar hún skoraði sigurmarkið er aðeins ein mínúta var til loka venjulega leiktíma.

Staðan orðin 3-2 Man Utd í vil og reyndust það lokatölur leiksins. Á morgun kemur í ljós hvort Aston Villa eða Chelsea mæti Man Utd í úrslitum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×