Bíó og sjónvarp

Kynntu nýja þætti úr söguheimi Game of Thrones og Harry Potter

Samúel Karl Ólason skrifar
HBO Max mun heita Max í maí. Miklar vendingar hafa orðið á streymisveitunni í kjölfar samrunna Discovery og Warner Bros..
HBO Max mun heita Max í maí. Miklar vendingar hafa orðið á streymisveitunni í kjölfar samrunna Discovery og Warner Bros.. Getty

Streymisveitan HBO Max mun fá nýtt nafn, „Max“, á næstu vikum og til stendur að gera nýja þætti úr söguheimi Game of Thrones og um Harry Potter. Þetta kom fram á kynningu hjá Warner Bros. Discovery í gær.

Þar kom fram að hefja ætti framleiðslu á þáttum sem kallast „A knight of the Seven Kingdoms: The Hedge Knight“. Þeir byggja á smásögum sem George R.R. Martin hefur skrifað og gerast um hundrað árum fyrir Game of Thrones.

Sagan fylgir eftir riddaranum Ser Duncan the Tall, sem kallast Dunk, og Aegon V Targaryen, sem kallast Egg og er skjaldsveinn Dunk.

Einnig er vert að benda á að tökur á annarri þáttaröð af House of the Dragon hófust á dögunum.

Fyrsta stikla True Detective var einnig sýnd á kynningunni í gær.

Ekki liggur fyrir hvenær Max verður aðgengilegt á Íslandi. HBO Max átti að koma til Íslands árið 2024.

Sjá einnig: HBO Max ekki væntanleg til Íslands fyrr en 2024

Einnig var tilkynnt í gær að gera ætti þætti um Harry Potter. Hinir nýju þættir um Harry Potter eiga að byggja á sömu bókum og myndirnar gera og stendur til að gera eina þáttaröð um hverja bók um galdrastrákinn fræga og ævintýri hans.

Forsvarsmenn Max tilkynntu einnig í gær að gera ætti þætti sem byggja á Mörgæsarmanninum í myndinni The Batman og mun Colin Farrell snúa aftur til að leika þennan fræga óvin Leðurblökumannsins.

Stikla þáttanna The Regime var einnig sýnd í gær. Með Kate Winslet í aðalhlutverki.

Þá var tilkynnt að verið væri að gera nýja grínþætti sem tengjast Big Bang Theory. Eins og með þættina um Dunk og Egg og Harry Potter var ekkert myndefni sýnt þar.


Tengdar fréttir

Önnur þáttaröð tveimur þáttum styttri

Önnur þáttaröð hinna vinsælu þátta House of the Dragon verður einungis átta þátta löng. Það er tveimur þáttum styttra en fyrsta þáttaröðin. Þá eru forsvarsmenn HBO þegar byrjaðir að velta fyrir sér að gefa grænt ljós á þriðju þáttaröðina.

Fleiri kvik­myndir úr Mið­garði á leiðinni

Framleiðslufyrirtækið Warner Bros. tilkynnti í gær að nýtt efni í kringum Hringadróttinssögu þríleikinn sé á leiðinni. Peter Jackson, leikstjóri Hringadróttinssögu-myndanna og kvikmyndanna um Hobbitann gæti leikstýrt sinni sjöundu kvikmynd um Miðgarð. 

Streymisstríðið tekur stakkaskiptum

Undanfarin ár hafa forsvarsmenn streymisveitna lagt allt kapp á að fjölga notendum, sama hvað það kostar. Samhliða miklum samdrætti í fjölgun notenda á markaðinum virðist sem þeim lið streymisstríðsins, sem samkeppnin milli streymisveitna er iðulega kölluð, sé lokið. Nú sé markmiðið að auka tekjur, draga úr kostnaði og reka streymisveitur með hagnaði.

Hætti við útgáfu Batgirl vegna áherslubreytinga og niðurskurðar

Ákvörðun forsvarsmanna Warner Bros og HBO um að hætta við útgáfu kvikmyndarinnar um Leðurblökustúlkuna (Batgirl) hefur vakið mikla athygli á undanförnum dögum og jafnvel furðu. Framleiðsluferli myndarinnar var mjög langt komið og er sagt hafa kostað allt að níutíu milljónir dala, sem samsvarar um 12,4 milljörðum króna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.