Innlent

Efling fundar um úr­sögn úr Starfs­greina­sam­bandinu

Eiður Þór Árnason skrifar
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar. Vísir/Vilheilm

Trúnaðarráð og stjórn Eflingar hafa samþykkt að boða til félagsfundar þar sem framtíð félagsins innan Starfsgreinasambandsins verður til umræðu.

Þetta staðfestir Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar við fréttastofu og segir að fundurinn fari fram á næstunni. RÚV greinir frá því að til standi að leggja fram tillögu um úrsögn Eflingar úr Starfsgreinasambandinu á umræddum félagsfundi en slík aðgerð hefur verið til umræðu innan stéttarfélagsins í nokkurn tíma. Efling er stærsta aðildarfélagið innan heildarsamtakanna sem tilheyra Alþýðusambandi Íslands. 

Klofningur innan sambandsins

Óánægju hefur gætt meðal stjórnar Eflingar í garð Starfsgreinasambandsins, ekki síst eftir að ágreiningur reis milli þeirra í síðustu kjarasamningslotu þar sem Starfsgreinasambandið skildi við Eflingu og undirritaði kjarasamning við Samtök atvinnulífsins. Sólveigu Önnu þóknaðist ekki þessi niðurstaða og sagði samninginn vera óásættanlegan fyrir Eflingarfólk.

Í kjölfar undirritunarinnar var þrýst á að kjaraamningurinn yrði fordæmisgefandi fyrir kröfur Eflingar og silgdu viðræður þess við Samtök atvinnulífsins um tíma í strand. Sólveig Anna gagnrýndi stjórn Starfsgreinasambandsins á þessum tíma en lengi vel átti hún náið samstarf við formanninn Vilhjálm Birgisson. Þá var Vilhjálmur harðorður í garð Sólveigar Önnu og gerði athugasemdir við að hún hafi ekki viljað taka þátt í samfloti Starfsgreinasambandsins.

Fréttin hefur verið uppfærð.


Tengdar fréttir

Sakar aðila innan Eflingar um að hafa lekið upp­­­lýsingum til fjöl­­miðla

Vilhjálmur Birgisson er harðorður í garð Sólveigar Önnu, formanns Eflingar í nýjum pistli sem hann birti fyrir stundu á Facebook síðu sinni. Þar ýjar hann að því að aðili innan Eflingar hafi lekið upplýsingum til fjölmiðla á meðan kjaraviðræður voru á viðkvæmu stigi með það að markmiði að skemma þá vinnu sem unnið var að og afvegaleiða það sem var verið að semja um. Hann segist sorgmæddur og dapur að sjá fólk sem hann taldi góða vini sína stinga sig í bakið.

„Ekki niðurstaða sem við getum sætt okkur við að neinu leyti“

Nýr kjarasamningur Starfsgreinasambandsins veldur Sólveigu Önnu Jónsdóttur formanni Eflingar vonbrigðum. Hún segir launahækkanirnar þar ekki geta talist ásættanlegar fyrir Eflingarfólk að nokkru leyti og að þær verði ekki fordæmisgefandi fyrir kröfur Eflingar í komandi viðræðum við Samtök atvinnulífsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×