Innlent

Sóttu slasaðan fjór­hjóla­mann

Árni Sæberg skrifar
TF-GNÁ sótti manninn.
TF-GNÁ sótti manninn. Landhelgisgæslan

Síðdegis í dag var þyrlusveit Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna fjórhjólamanns sem slasast hafði við fjallið Strút á Mælifellssandi.

Í tilkynningu á Facebooksíðu Landhelgisgæslunnar segir að þegar þyrlan kom á vettvang hafi sjúkraflutningamenn og björgunarsveitarfólk á vegum Landsbjargar þegar verið komið á staðinn.

Hlúð hafi verið að manninum á staðnum áður en hann var fluttur á Landspítalann í Fossvogi um borð í TF-GNÁ.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×