Inter naumlega áfram eftir að leggja rútunni í Portúgal Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 14. mars 2023 22:15 Leikmenn Inter fórnuðu sér fyrir málstaðinn í kvöld. EPA-EFE/JOSE COELHO Inter Milan er komið í 8-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu eftir markalaust jafntefli við Porto í Portúgal. Inter vann fyrri leikinn 1-0 og er því komið áfram. Það var snemma ljóst að leikmenn Inter höfðu lítinn áhuga á að sækja annað mark einvígisins í kvöld. Þeir mættu, lögðu rútunni fyrir framan mark sitt og hófu svo að múra á milli markstanganna. Heimamenn voru mun meira með boltann, fengu fleiri og betri færi en tókst ekki að skora. Bestu færi Porto komu í uppbótartíma síðari hálfleiks en allt kom fyrir ekki og leiknum lauk með markalausu jafntefli. Dramatíkin var of mikil fyrir Pepê sem fékk sitt annað gula spjald í uppbótartíma og þar með rautt. Inter hold out #UCL pic.twitter.com/jYYAwSbe4S— UEFA Champions League (@ChampionsLeague) March 14, 2023 Inter, Manchester City, Chelsea, Benfica, AC Milan og Bayern München eru komin áfram í 8-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu. Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Ítalski boltinn Portúgalski boltinn