Rúnar og reglurnar sýndu að troðslan „sem hætti við“ var réttilega dæmd af Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. mars 2023 13:30 Taiwo Badmus tróð boltanum í körfuna en það var ekki nóg til að fá tvö stig á töfluna. Reglurnar sýna að boltinn þurfi að fara í gegnum netið. Vísir/Bára Rúnar Birgir Gíslason, FIBA eftirlitsmaður, hefur leiðrétt strákana í Körfuboltakvöldi sem voru ekki alveg með leikreglurnar á hreinu á dögunum.
Í síðasta Subway Körfuboltakvöldi var það fullyrt að dómararnir hefðu gert mistök með því að dæma körfu af Tindastólsliðinu. Karfan sem um ræðir var þegar Tindastólsmaðurinn Taiwo Badmus tróð boltanum í körfuna en boltinn fór aldrei alveg í gegnum netið og skaust þess í stað upp úr körfunni aftur. Þegar betur er að gáð þá sýna körfuboltareglurnar það að dómarar leiksins höfðu rétt fyrir sér. Rúnar Birgir sýndi körfuna „sem hætti við“ að fara í gegnum netið og um leið hvað körfuboltareglur FIBA segja til um slík dæmi. Þar kemur líka fram að þessi karfa hefði verið dæmd gild í NBA-deildinni. „Í Körfuboltakvöldi á Stöð 2 síðasta föstudag var m.a. sýnt atvik þar sem Taiwo Badmus tróð knettinum og boltinn fór aldrei í gegnum netið en fór upp úr aftur. Dómarar dæmdu að þetta væri ekki karfa en í Körfuboltakvöldi var sagt að það væri rangt,“ skrifaði Rúnar Birgir Gíslason á fésbókarsíðu sína. „Þar sem þetta er nokkuð skýrt dæmi þá langar mig að leiðrétta Körfuboltakvöld, ekki síst þar sem næsti þáttur er ekki fyrr en næsta föstudag og þá verður kominn tími til að hugsa um aðra hluti. Eins vil ég leyfa mér að leiðrétta þetta þar sem það er einhver umræða í gangi um þetta,“ skrifaði Rúnar Birgir. Hér fyrir neðan má sjá nánari útskýringar á þessu frá Rúnari Birgi.
Subway-deild karla Körfuboltakvöld Tindastóll Mest lesið Sjáðu ískaldan Guðmund Magnússon klára KR og bæði rauðu spjöldin Íslenski boltinn Þjálfari Evrópumeistaranna segir Rodri bestan í heimi Fótbolti Andrea í sólina í Tampa Íslenski boltinn Ómar: Þetta var sigur liðsheildarinnar Fótbolti Uppgjörið og viðtöl: FH - HK 3-1 | FH-ingar aftur á sigurbraut Íslenski boltinn Ralf Schumacher kemur út úr skápnum Formúla 1 Uppgjörið: Fylkir - ÍA 3-0 | Fylkismenn skelltu Skagamönnum niður á jörðina Íslenski boltinn Ómar Ingi: Það er í skoðun að styrkja liðið Sport Fyrirliði Evrópumeistaranna á leið til Milan Fótbolti Fer ófögrum orðum um frammistöðu Rice: „Hann er gagnslaus“ Fótbolti Fleiri fréttir Njarðvíkingar búnir að finna sér Bandaríkjamann Þrjátíu stiga tap gegn Slóvenum en sextán liða úrslit framundan Keflvíkingar fá þýskan framherja Stelpurnar komust ekki upp í A-deildina Tólf ár á milli fjórðu og fimmtu Ólympíuleika hennar Bronny James hefur klikkað á öllum skotunum sínum Stórkostlegt svar hjá íslensku strákunum eftir skellinn í gær Fáliðað lið Ísland tapaði í undanúrslitum Norðurlandameistarnir fengu stóran skell í fyrsta leik EM Matareitrun á EM: Fimm veikar í íslenska hópnum og ein fór á sjúkrahús Brunson hjálpar Knicks með því að skilja fimmtán milljarða eftir á borðinu Búin að bæta nýliðametið þótt að það séu enn sextán leikir eftir Innlit í nýtt íþróttahús Njarðvíkinga: „Þetta er þvílíkt mannvirki“ Íslensku stelpurnar í undanúrslit eftir stórsigur á Írum Caitlin Clark með tölur sem hafa aldrei sést í NBA né WNBA Kawhi vildi spila á Ólympíuleikunum en var sendur heim Agnes og Eva atkvæðamestar í tapi fyrir Tékkum Danski Jokic í Bónus-deildina „Sannfærð um að þessi samningur lyfti körfuboltanum enn meira upp“ Subway deildin verður Bónus deildin Reiknar með því að hinn fjörutíu og tveggja ára Hlynur troði á komandi tímabili Tryggðu sér sæti í átta liða úrslitum Grindvíkingar fá landsliðskonu frá Njarðvík Álftanes fær til sín leikjahæsta Stjörnumanninn Giannis á leið á sína fyrstu Ólympíuleika Caitlin Clark varð fyrsti nýliðinn til að ná þrefaldri tvennu LeBron fær meira borgað næstu tvö ár en Jordan fékk allan ferilinn Luka og Giannis geta tekið Ólympíudrauminn frá hvorum öðrum Fundu strax nýjan Skvettubróður fyrir Steph Curry Kemba Walker hættur og verður þjálfari hjá Hornets Sjá meira