Viðskipti innlent

Flotinn mokveiddi hrognafulla loðnu undan Reykjanesi í dag

Kristján Már Unnarsson skrifar
Albert Sveinsson er skipstjóri á Víkingi AK sem var að landa 2.300 tonnum í Akraneshöfn í dag.
Albert Sveinsson er skipstjóri á Víkingi AK sem var að landa 2.300 tonnum í Akraneshöfn í dag. Egill Aðalsteinsson

Loðnuvertíðin stendur nú sem hæst. Loðnan er komin að hrygningu og þar með í sitt verðmætasta form og er hver dagur að skila eins til tveggja milljarða króna gjaldeyristekjum.

Í fréttum Stöðvar 2 var sýnt beint frá Akranesi þar sem verið var að landa 2.300 tonnum úr Víkingi AK. Loðnan veiddist í norðanverðum Faxaflóa upp undir Arnarstapa og var henni dælt inn í hrognavinnslu Brims þar sem unninn er úr henni kavíar, langverðmætasta afurðin. 

Á bryggjunni var Albert Sveinsson skipstjóri spurður um hvernig vertíðin hefði gengið.

„Þetta hefur bara verið frábær veiði og mikið af loðnu.“

Víkingur AK að loðnuveiðum í norðanverðum Faxaflóa. Verið er að dæla loðnunni úr nótinni og inn í lestar skipsins.Sigurjón Ólason

-Og nú er hún að ná hámarki?

„Hún er að ná hámarki. Kominn hundrað prósent þroski og styttist í hrygningu á þessari loðnu sem við erum að veiða núna.“

-Hvað eigið þið marga daga eftir?

„Það er ómögulegt að segja. Það er allavega góð veiði ennþá. Ég var að tala við þá á miðunum rétt áðan og það var mokveiði í dag út af Reykjanesi.“

Loðna um borð í Beiti NK. Verið er að dæla henni úr nót grænlenska skipsins Polar Amaroq, sem sést hægra megin. Efst til vinstri grillir í Snæfellsjökul.Sigurjón Ólason

-Þannig að núna er loðnuævintýrið í hámarki?

„Það er í hámarki.“

-Farmurinn sem þið eruð að koma með að landi, kannski 150 milljóna króna virði?

„Það gæti verið eitthvað svoleiðis. Ef það kemur mikið af hrognum og borgað þokkalegt verð, þá gæti það verið það.“

Frá loðnuveiðum. Guðrún Þorkelsdóttir SU hringar nótina utan um loðnutorfu í norðanverðum Faxaflóa.Sigurjón Ólason

-Og miðað við að það væru kannski landanir tíu skipa á dag, þetta eru kannski einn til tveir milljarðar sem eru að berast á land á hverjum degi?

„Já, það gerist mikið á stuttum tíma,“ svarar Albert skipstjóri.

Frá loðnuveiðum í norðanverðum Faxaflóa. Sigurður VE, Víkingur AK og Polar Amaroq.KMU

Já, loðnuflotinn er þessa dagana að koma með eins til tveggja milljarða króna verðmæti að landi á hverjum sólarhring, það er að segja áður en loðnan hrygnir og drepst. Þetta er því gríðarleg spenna næstu daga.

Flotinn gæti átt eina viku eftir, kannski tvær vikur, en lokaspretturinn ræðst ekki síst af því hvort líkleg vestanganga muni skila vænlegum afla. Það virðist þó stefna í að þetta verði vart minna en 40 til 50 milljarða króna loðnuvertíð að þessu sinni.

Hér má sjá frétt Stöðvar 2:


Tengdar fréttir

Óvænt loðna í Húnaflóa ávísun á mikil verðmæti

Miklar loðnutorfur hafa óvænt fundist norður af Húnaflóa og tilkynnti Hafrannsóknastofnun í dag að búast mætti við að minnsta kosti eitthundrað þúsund tonna aukningu loðnukvótans. Viðbótin gæti skilað tíu milljarða króna útflutningsverðmæti.

Bræðslur keyrðar á olíu vegna raforkuskerðingar

Annan veturinn í röð hafa fiskimjölsverksmiðjur neyðst til að brenna dísilolíu vegna raforkuskerðingar. Landsvirkjun segir þetta vegna mikils álags, kerfið sé nánast uppselt.

„Alltaf brælur í kortunum, lægðagangur og ógeð“

Loðnuvertíðin er að fara á fulla ferð þessa dagana og styttist í að loðnan verði hæf til frystingar á Japansmarkað. Síendurteknar brælur eru hins vegar í veðurkortunum og gætu hamlað veiðum.

Jólabónus Vopnfirðinga að hefja loðnuvinnslu fyrir jól

Fyrsti loðnufarmur þessarar vertíðar kom til Vopnafjarðar í morgun en þar stendur núna yfir löndun úr Víkingi AK, skipi Brims. Rekstrarstjóri Brims segir loðnuna sannkallaðan jólabónus en tíu ár eru frá því loðnuvinnsla hófst síðast á Vopnafirði fyrir jól.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×