Skoðun

Vel gert herra strætómála­ráð­herra

Hildur Sverrisdóttir skrifar

Fyrr á þessu ári sendi ég innviðaráðherra fyrirspurn um hvort standi til að bæta almenningssamgöngur til Keflavíkurflugvallar. Í gær barst mér svo skýrt svar þar sem ráðherra segir lengstra orða að hann ætli að stofna starfshóp sem eigi annars vegar að koma að umbótum á þjónustunni fyrir sumarið og hins vegar aðgerðaáætlun um úrbætur á næstu þremur árum. Horft verður til leiðakerfis, þjónustustigs, verðskrár, staðsetningar og umgjörðar biðstöðva og kolefnisfótspors. Þetta er fagnaðarefni og ráðherra til hróss.

Merki um þróað nútímasamfélag

Keflavíkurflugvöllur er langmikilvægasta gátt Íslendinga út í heim og gesta til Íslands. Gestir frá nágrannalöndum eru vanir því að aðgengilegar samgöngur séu í boði og gangi smurt fyrir sig frá flugvelli og í miðborg. Þetta einfaldlega þykir merki um þróað og nútímalegt samfélag og er partur af samkeppnishæfni ferðaþjónustu landsins.

Strætó í lamasessi

Staðan er hins vegar sú að allt sem viðkemur Strætó og ferðum milli flugvallarins og höfuðborgarinnar er í hálfgerðum lamasessi. Upplýsingar og merkingar um aðgengi að strætisvögnum eru af mjög skornum skammti í flugstöðinni. Strætisvagnastöðin er fjarri flugstöðvarbyggingunni og hvorki aðgengileg né augljós.

Þess vegna er sérlega gott að í svari ráðherra segir til skýrt að það eigi tvímælalaust að skoða að færa biðskýli Strætó nær flugstöðvabyggingunni.

Ferðum Strætó er svo þannig háttað að ekki er hægt að treysta á að komast í eða úr flugi, sem oftar en ekki er að nóttu eða mjög snemma morguns. Leiðirnar ganga ekki einu sinni alltaf alla leið til Reykjavíkur.

Verður að stuðla að aðgengilegum almenningssamgöngum

Vegagerðin hefur þá ábyrgð að stuðla að öruggum, sjálfbærum, greiðum og hagkvæmum almenningssamgöngum milli staða á landsbyggðinni. Það getur varla staðist að Keflavíkurflugvöllur falli ekki undir þá skilgreiningu.

Því er gott að sjá að tilvonandi starfshópur eigi að vera með fulltrúa Vegagerðinnar ásamt Isavia og Strætó bs., Samtaka sveitarfélaga á Suðurnesjum og Kadeco til að hægt sé að tækla málið heildstætt. Sem þingmaður Reykjavíkur get ég þó ekki látið undir höfuð leggjast að passa upp á hagsmuni Reykvíkinga í þessari væntanlegu samgöngubót og bendi á að í hópinn vantar fulltrúa höfuðborgarinnar.

Þegar öllu er á botninn hvolft á einfaldlega að vera hægt að komast til og frá flugvellinum með aðgengilegum almenningssamgöngum. Fyrirspurn mín til ráðherra laut að því að vekja athygli á að það er ekki staðan. Það er gleðilegt að fyrirspurnin hafi komið hreyfingu á málið og ég mun fylgjast spennt með vinnu hópsins sem fær það mikilvæga verkefni að láta þetta kerfi virka svo sómi sé að.

Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×