Menning

Örva skilningarvitin með skemmtilegri tilraunamennsku

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Katrín Gunnarsdóttir og Eva Signý Berger standa að verkinu Soft Shell.
Katrín Gunnarsdóttir og Eva Signý Berger standa að verkinu Soft Shell. Aðsend

Katrín Gunnarsdóttir og Eva Signý Berger mynda listrænt teymi verksins Soft Shell sem er stöðugt verk í vinnslu. Á morgun geta gestir komið og séð afrakstur af vinnustofu sem þær standa fyrir í Gryfjunni, Ásmundarsal.

„Þetta er rannsóknarverkefni þar sem við erum að skoða sjónræna skynjun, hljóð og hreyfingar í tengslum við sensory upplifun og hugleiðslu,“ segir Katrín Gunnarsdóttir um Soft Shell í samtali við blaðamann.

Katrín Gunnarsdóttir, dansari og kóreógrafer.Aðsend

Framkalla hugleiðsluástand og leika við skilningarvitin

Katrín og Eva Signý koma úr ólíkum listrænum bakgrunnum en Katrín er lærður dansari og kóreógrafer, hefur samið á annan tug dansverka og tekið þátt í fjölmörgum verkefnum hérlendis sem og víða um heiminn. Eva Signý er lærður leikmynda- og búningahönnuður og hefur hannað fyrir fjöldann allan af fjölbreyttum verkum.

Í fréttatilkynningu segir meðal annars:

Soft Shell er verk í vinnslu sem skoðar hvernig sjónræn skynjun, hljóð og hreyfingar geta framkallað hugleiðsluástand og leikið við skilningarvitin.“

Eva Signý, leikmynda- og búningahönnuður.Aðsend

Manngerð náttúra

Katrín og Eva Signý sækja innblásturinn meðal annars í fagurfræði og inntak sjónrænna ASMR myndbanda, til að skoða í samhengi lifandi flutnings. Ásamt því gera þær tilraunir með áferðir og eiginlega efnis þegar það mætir líkama.

„Dansararnir Saga Kjerulf Sigurðardóttir og Ásgeir Helgi Magnússon koma að leika sér í þessari manngerðu náttúru sem við erum að búa til hér í Ásmundarsal,“segir Katrín. 

Í fréttatilkynningu segir einnig að á vinnustofunni verði nánar skoðað samband þessa tveggja dansara við innsetningu og búninga úr svampteningum, plastefni og textíl, samband þeirra við hvort annað og við áhorfendur.

Dansararnir Ásgeir Helgi Magnússon og Saga Kjerulf Sigurðardóttir.Owen Fiene

Skemmtileg tilraunamennska

„Við höfum ekki gert það áður að opna þetta fyrir áhorfendum. Þetta er nýtt samhengi fyrir okkur, við erum vanar að vinna saman í leikhúsinu en hér fáum við tækifæri til að skoða hlutina á öðruvísi hátt, sem er skemmtileg tilraunamennska fyrir okkur,“ segir Katrín.

Verkið Soft Shell er stöðugt í vinnslu og er skemmtileg tilraunamennska að sögn Katrínar.Aðsend

Síðustu ár hefur Katrín unnið að því ​að byggja upp hreyfitungumál og myndmál þar sem mýkt, hlustun, síbreytileg hreyfing og samruni líkama við umhverfi sitt leika lykilhlutverk.

Í samstarfi sínu við Katrínu skoðar Eva Signý hvernig þróa megi hugmyndir frá einu sviðsverki til annars og færa dansinn úr hefðbundnu rými leikhússins og inn í samhengi myndlistar.

Afrakstur af vinnustofunni verður sem áður segir sýndur á morgun, fimmtudaginn 2. mars, klukkan 18:00. Aðgangur er ókeypis og öll velkomin.


Tengdar fréttir

KÚNST: Kúrekar og leyndarmál í Ásmundarsal

Síðastliðin fimm ár hefur Ásmundarsalur staðið fyrir jólasýningu þar sem fjölbreyttur hópur myndlistarfólks kemur saman með ólík listaverk til sölu. Í dag, á Þorláksmessu, er síðasti dagur sýningarinnar en KÚNST leit við á sýninguna um daginn og fékk innsýn í hugarheim nokkurra listamanna á svæðinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.