Viðskipti innlent

Lilja Kristín nýr forstöðumaður hjá Vodafone

Máni Snær Þorláksson skrifar
Lilja Kristín hefur verið ráðin forstöðumaður markaðs- og samskiptamála hjá Vodafone.
Lilja Kristín hefur verið ráðin forstöðumaður markaðs- og samskiptamála hjá Vodafone. Sýn

Lilja Kristín Birgisdóttir hefur verið ráðin sem forstöðumaður markaðs- og samskiptamála hjá Vodafone. 

Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að um sé að ræða forstöðumannstöðu innan þess þar sem lykiláhersla verður lögð á að tryggja að samtal Vodafone við viðskiptavini sé í takt við þarfir viðskiptavina. Lilja Kristín mun einnig bera ábyrgð á uppbyggingu vörumerkja og öðrum markaðsmálum hjá Vodafone. 

Lilja Kristín kemur til Vodafone frá indó þar sem hún stýrði stafrænni markaðssetningu. Fyrir það starfaði hún um nokkurra ára skeið hjá Krónunni sem sérfræðingur í markaðs- og umhverfismálum og hjá Cintamani sem markaðssérfræðingur og vefstjóri. 

„Vodafone er með skýra framtíðarsýn þar sem áherslan er á að efla samtalið við viðskiptavini og skapa heildræna þjónustumiðaða upplifun. Ég er mjög spennt að taka þátt í þeirri sóknarvegferð og hlakka til að takast á við fjölbreytt verkefni með því öfluga fólki sem að starfar hjá Vodafone. Ég er sannfærð um að reynsla mín og þekking mun nýtast vel í komandi verkefnum“ segir Lilja Kristín Birgisdóttir.

Sesselía Birgisdóttir, framkvæmdastjóri sölu-, þjónustu- og markaðsmála Vodafone, segist vera sannfærð um að reynsla og þekking Lilju Kristínar eigi eftir að nýtast fyrirtækinu. 

„Við erum sífellt að leita leiða til þess að nýta tækni til þess að veita viðskiptavinum okkar framúrskarandi þjónustu. Að fá Lilju Kristínu til þess að leiða markaðs- og samskiptamál Vodafone styrkir okkur í þeirri vegferð“ segir Sesselía.

Vísir og Vodafone eru undir hatti Sýnar hf.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×