Lagði skóna á hilluna í fyrra en snéri aftur með uppeldisfélaginu eftir 14 ára fjarveru Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 20. febrúar 2023 07:00 Hildur Þorgeirsdóttir í leik með Fram. Hún snéri aftur til uppeldisfélagsins FH í gær. vísir/anton Handboltakonan Hildur Þorgeirsdóttir dró skóna fram á ný þegar FH vann öruggan tíu marka sigur gegn Fjölni/Fylki í Grill 66 deild kvenna í gærkvöldi. Hildur lagði skóna á hilluna eftir seinasta tímabil og í gær var hún að leika með uppeldisfélagi sínu í fyrsta skipti síðan árið 2009.
Eins og áður sagði lagði Hildur skóna á hilluna eftir seinasta tímabil. Hún lék þá með Fram og varð Íslandsmeistari með félaginu í þriðja sinn áður en hún tilkynnti að hún ætlaði að segja skilið við handboltaferilinn. Frá því var svo greint á Handbolti.is í gær að Hildur hafi reimað á sig handboltaskóna á ný þegar FH-ingar unnu tíu marka sigur gegn Fjölni/Fylki, 31-21. Hildur hefur æft með FH í vetur og fékk félagsskipti til félagsins félagaskiptafresturinn rann út um síðustu mánaðarmót. Hún lét vel til sín taka í leik gærkvöldsins og skoraði fimm mörk. Hildur er uppalin hjá FH, en hefur ekki leikið með liðinu á Íslandsmóti síðan árið 2009, eða fyrir 14 árum síðan. Hún gekk í raðir Fram það ár áður en hún fór til Þýskalands tveimur árum síðar og lék þar tvö tímabil með Blomberg-Lippe og tvö tímabil með Koblenz. Með Fram varð Hildur Íslandsmeistari í þrígang, árin 2017, 2018 og 2022, og bikarmeistari árin 2010, 2011, 2018 og 2020. Þá lék Hildur yfir fimmtíu landsleiki og var í íslenska liðinu sem tók þátt á EM 2012 í Serbíu.
FH Handbolti Fram Mest lesið Segjast ekki eiga pening og konunum fórnað Handbolti Segja Bandaríkin ekki tilbúin fyrir HM og Ólympíuleika Sport Fyrsta íslenska tvennan í frönsku deildinni í meira en 42 ár Fótbolti Framtíðaráform Laugardalsvallar kynnt á ársþingi KSÍ Fótbolti Íslendingur meðal yngstu markaskorara í sögu Evrópukeppnanna Fótbolti Kári kemur inn í hópinn gegn Tyrkjum Körfubolti Segja að nýja reglan eyðileggi sportið Sport „Pínu erfitt að hlæja að Kára“ Sport Enn á lyfjum eftir súr töp á ferlinum Fótbolti Þrjátíu persónulegar bætingar á MÍ og Eir Chang tvöfaldur meistari Sport Fleiri fréttir Segjast ekki eiga pening og konunum fórnað Enn einn stórleikur Elvars og Melsungen áfram á toppnum Elliði frábær þegar Gummersbach valtaði yfir Ljónin frá Löwen Blomberg-Lippe í góðri stöðu í Evrópudeildinni „Eins besta vörn sem við höfum spilað held ég“ „Frammistaða á alþjóðamælikvarða“ Haukar flugu inn í 8-liða úrslitin Uppgjörið: Haukar - Hazena Kynzvart 27-22 | Frækin framganga Hauka dugði því miður ekki til Uppgjörið: Valur - Slavía Prag 28-21 | Valskonur skrefi nær undanúrslitum Þorsteinn Leó og félagar upp í toppsætið Uppgjör: ÍR-ÍBV 34-30 | ÍR-stelpur ekki vandræðum með Eyjakonur í Skógarselinu Vígja Mörthu í goðsagnarhöllina „Stundum reynir á samskipti okkar feðga“ Áhugi Íslendinga heillaði: Ísak hafnaði Noregi til að herma eftir afa Gömlu Haukafélagarnir í stóru hlutverki í sitt hvoru landinu Uppgjörið og viðtöl: HK - KA 33-29 | HK steig stórt skref í átt að sæti í úrslitakeppninni Mögnuð tilþrif Viktors Gísla á topplista EHF Tveir nýliðar úr Haukum í landsliðinu „Vissi ekki hvað þessi sársauki þýddi“ Stór helgi að Hlíðarenda: Stefnan sett á undanúrslit Gríðarleg spenna á toppnum Orri Freyr magnaður þegar það leið yfir annan dómarann Kennir sjálfum sér um ófarir Gísla Haukar halda sér í toppbaráttunni Janus Daði öflugur í súru tapi Mögnuð Elín Klara þegar Haukar unnu Stjörnuna Elvar Örn öflugur og Melsungen áfram á toppnum Selfoss sá ekki til sólar á Hlíðarenda Íslendingalið Benfica og Gummersbach halda í vonina Þriðja landsliðskona liðsins orðin ófrísk Sjá meira