Lífið

Stjörnu­lífið: Sam­bands­af­mæli, Idol og ó­léttu­bumbur

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Stjörnulífið er vikulegur fastur liður á Vísi
Stjörnulífið er vikulegur fastur liður á Vísi Samsett

Stór vika er að baki en á föstudaginn eignaðist þjóðin sína fimmtu Idolstjörnu, hana Sögu Matthildi. Idol einkenndi því vikuna hjá mörgum á meðan aðrir flúðu febrúarlægðina og ferðuðust út fyrir landsteinana.

Tónlistarkonan og Idol dómarinn Bríet var stórglæsileg á úrslitakvöldi Idolsins, klædd í kjól úr gæru. Bríet hefur verið óhrædd við að prófa sig áfram með hinum ýmsu lúkkum í gegnum þáttaröðina en á föstudaginn toppaði hún sig algjörlega.

Meðdómari hennar, Birgitta Haukdal, var einnig hin glæsilegasta á úrslitakvöldinu.

Birgitta Líf naut lífsins í skíðaferð á Ítalíu ásamt kærasta sínum, Enoki Jónssyni.

Leikkonan Íris Tanja frumsýndi verkið Samdrættir í Tjarnarbíói ásamt Þórunni Lárusdóttur.

Dansarinn og samfélagsmiðlastjarnan Ástrós Traustadóttir eignaðist dóttur. Hún birti einnig fallegar meðgöngumyndir sem höfðu verið teknar fjórum dögum áður en dóttirin mætti á svæðið.

Fótboltamaðurinn Hörður Björgvin Magnússon fagnaði 30 ára afmæli í faðmi dætra sinna.

Idolstjarnan Kjalar hreppti annað sætið í úrslitum Idolsins á föstudaginn. Næsta keppni tekur strax við en hann keppir í Söngvakeppni Sjónvarpsins þann 25. febrúar.

Saga Matthildur, nýkrýnd Idolstjarna Íslands, birti einnig myndir frá Idolævintýrinu.

TikTok stjarnan Brynhildur Gunnlaugsdóttir spókaði sig á sundlaugarbakkanum í Los Angeles.

Stílistinn Hulda Halldóra er hálfnuð með lyfjameðferð. Hulda ræddi um krabbameinið í einlægu viðtali við Vísi í vikunni.

Tónlistarkonan Laufey Lín spókaði sig á götum New York-borgar.

Listakonan Saga Sig er komin í fæðingarorlof enda rétt um mánuður í settan dag. Hún segir skrítið að vera ekki að vinna, í fyrsta skipti í fimmtán ár.

Bubbi Morthens blessaði okkur með speglamynd í tilefni 157. sýningar á Níu lífum.

Fatahönnuðurinn og athafnakonan Andrea Magnúsdóttir naut lífsins í París ásamt fjölskyldu sinni.

Sunneva Einars fagnaði afmæli kærasta síns og besta vinar, Benedikts Bjarnasonar.

Svala Björgvins átti afmæli og smellti í sjálfu í tilefni dagsins.

Förðunarfræðingurinn Rakel María fagnaði því að hafa lokið stærsta verkefni sínu til þessa.

Tónlistarkonan Glowie nýtur sín vel í nýju starfi en hún tók nýlega við sem deildarstjóri í tískuvöruversluninni Monki.

Fegurðardrottningin Hulda Vigdísardóttir fagnaði fjórum árum með kærasta sínum Birgi Erni Sigurjónssyni. Þau eignuðust sitt fyrsta barn nú á dögunum.

Jóhanna Helga stillti sér upp í lyftu. Hún og Sunneva Einars greindu nýlega frá því að þær væru að fara af stað með nýja seríu af þáttum sínum #Samstarf.

Ofurparið Ingileif Friðriksdóttir og María Rut Kristinsdóttir naut sín í Skógarböðunum.


Tengdar fréttir

Hætt að vera Glowie í bili

Tónlistarkonan Glowie ætlar að segja skilið við tónlistina í bili og einbeita sér að því að vera bara Sara Pétursdóttir. Hún segir mikið álag hafa fylgt því að vera í sviðsljósinu frá ungum aldri og nú ætli hún að taka sér tíma í það að vera fullorðin. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.