Viðskipti innlent

Fyrsti ís­lenski spari­sjóðurinn sem stofnaður er frá grunni frá 1991

Atli Ísleifsson skrifar
Tryggvi Björn Davíðsson og Haukur Skúlason er stofendur Indó.
Tryggvi Björn Davíðsson og Haukur Skúlason er stofendur Indó. Indo

Nýr íslenskur sparisjóður, Indó, opnar formlega í dag og er hann fyrsti íslenski sparisjóðurinn sem stofnaður er frá grunni frá 1991.

Í tilkynningu frá sjóðnum kemur fram að allir landsmenn eigi möguleika á að opna reikning hjá sparisjóðnum.

„Til að byrja með mun indó bjóða upp á debetkortareikning en í náinni framtíð mun frekari þjónusta bætast við. Viðskiptavinir indó geta stundað öll helstu bankaviðskipti líkt og hjá öðrum bönkum strax, eins og til dæmis að borga reikninga eða greiða fyrir vörur og þjónustu um allan heim með debetkortinu, símanum eða millifæra. Allir einstaklingar sem eru eldri en 18 ára og með rafræn skilríki geta orðið indóar og opnað reikning hjá sparisjóðnum á innan við mínútu.

Markmið indó er að þjónusta venjulegt fólk með því sem það þarf og engum óþarfa. Verðskráin er gagnsæ og skýrt hvað borgað er fyrir. Þannig eru til dæmis engin færslugjöld á debitkortafærslum, gjaldeyrisálag eða önnur falin gjöld. Allar innistæður hjá indó eru tryggðar upp að 100.000 evrum líkt og hjá öðrum sparisjóðum og bönkum á Íslandi.

Indó er stofnað af Hauki Skúlasyni og Tryggva Birni Davíðssyni með þann tilgang að gera hlutina öðruvísi en bankar og er fyrsti íslenski sparisjóðurinn sem stofnaður er frá grunni síðan 1991. Félagið er með skýra sýn hvernig það ætlar að vinna og hvernig það ætlar ekki að vinna. Vegna einfaldrar yfirbyggingar þarf indó til dæmis ekki mikinn fjölda starfsfólks og getur þannig boðið viðskiptavinum betri kjör,“ segir í tilkynningunni.


Tengdar fréttir

Sjö ráðin til indó

Íslenski sparisjóðurinn indó hefur ráðið sjö nýja starfsmenn, þau Hjördísi Elsu Ásgeirsdóttur, EInar Björgvin Eiðsson, Stefaníu Sch. Thorsteinsson, Lilju Kristínu Birgisdóttur, Söru Mildred Harðardóttur, Hermann Guðmundsson og Valgerði Kristinsdóttur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×