Erlent

Annar Þjóðverji handtekinn vegna njósna fyrir Rússa

Samúel Karl Ólason skrifar
Maðurinn sem handtekinn var í dag er sagður heita Arthur E. og er hann grunaður um að hafa fært rússneskum yfirvöldum leynilegar upplýsingar, sem starfsmaður þýsku leyniþjónustunnar BND lak til hans.
Maðurinn sem handtekinn var í dag er sagður heita Arthur E. og er hann grunaður um að hafa fært rússneskum yfirvöldum leynilegar upplýsingar, sem starfsmaður þýsku leyniþjónustunnar BND lak til hans. Getty/Christophe Gateau

Lögreglan í Þýskalandi handtók á sunnudaginn annan mann vegna umfangsmikils og vandræðalegs njósnamáls. Í desember var starfsmaður BND, leyniþjónustu Þýskalands, handtekinn og er sá grunaður um að hafa njósnað fyrir Rússa.

Maðurinn sem handtekinn var í dag er sagður heita Arthur E. og er hann þýskur ríkisborgari. Hann var handtekinn er hann kom til Þýskalands frá Bandaríkjunum á sunnudaginn en handtakan var ekki opinberuð fyrr en í dag.

Arthur er grunaður um að hafa fært rússneskum yfirvöldum leynilegar upplýsingar sem Carsten L., áðurnefndur starfsmaður BND, stal frá leyniþjónustunni, samkvæmt frétt DW. Arthur er ekki starfsmaður BND en Carsten var handtekinn í desember.

Lögreglan í Þýskalandi naut aðstoðar Alríkislögreglu Bandaríkjanna, FBI.

Fyrrverandi yfirmaður í þýska hernum, sem starfaði enn í varalið hersins, var dæmdur í nóvember í fyrra fyrir að leka upplýsingum til rússneskra njósnara. Þá var yfirmaður netvarna Þýskalands rekinn í október eftir að þýskir fjölmiðlar bentu á að hann tengdist fólki sem vinnur í rússneskum leyniþjónustum.

Árið 2021 var starfsmaður þýska þingsins ákærður fyrir að hafa lekið teikningum og öðrum gögnum um þinghúsið til starfsmanns sendiráðs Rússlands í Berlín.

Sjá einnig: Sendi teikningar af þinghúsi Þýskalands til rússnesks njósnara

Síðast þegar mál sem þetta kom upp var árið 2016 þegar fyrrverandi starfsmaður BND var dæmdur í átta ára fangelsi fyrir að leka leynilegum upplýsingum til Bandaríkjanna.

Innrás Rússa í Úkraínu hefur leitt til aukinna áhyggja af njósnum þeirra á meginlandi Evrópu. Mörg ríki heimsálfunnar hafa vísað fjölmörgum rússneskum erindrekum og meintum njósnurum úr landi.


Tengdar fréttir

Vann fyrir rússneskan auðjöfur sem hann átti að rannsaka

Saksóknarar ákærðu í gær mann sem var einn af æðstu starfsmönnum Alríkislögreglu Bandaríkjanna í New York. Charles McGonigal er sakaður um að hafa unnið fyrir rússneskan auðjöfur sem hann var með til rannsóknar.

Dæmdur í lífs­tíðar­fangelsi fyrir að njósna um Svía fyrir Rússa

Dómstóll í Stokkhólmi hefur dæmt tvo bræður í fangelsi fyrir njósnir en þeir voru sagðir hafa veitt Rússum upplýsingar sem gætu skaðað þjóðaröryggi Svía. Eldri bróðirinn var dæmdur í lífstíðarfangelsi en sá yngri fékk tæplega tíu ára dóm. Sérfræðingur segir brot af þessari stærðargráðu sjaldgæf í Svíþjóð. 

Njósnari Breta tekinn af lífi í Íran

Bresk-ír­anski maður­inn Alireza Ak­bari var tekinn af lífi í Íran eft­ir að hafa verið sakaður um njósn­ir fyr­ir Bret­land. Af­tak­an hef­ur verið fordæmd bæði í Bretlandi og í Íran.

Falsa ásakanir gegn eigin njósnara

Þegar 36 ára gamall maður undir nafninu Victor Muller Ferreira lenti á flugvelli í Sao Paulo í apríl var hann fljótt handtekinn. Yfirvöld í Brasilíu höfðu verið vöruð við því að maðurinn héti í raun Sergey Cherkasov og væri rússneskur njósnari sem hefði skömmu áður reynt að verða starfsnemi hjá Alþjóðlega sakamáladómstólnum í Hag.

Njósnararnir í Stokkhólmi eru rússnesk hjón á sjötugsaldri

Lögregluþjónar og hermenn handtóku í morgun rússnesk hjón í úthverfi Stokkhólms í Svíþjóð. Klukkan sex að staðartíma í morgun var tveimur herþyrlum flogið að heimili hjónanna og út streymdu menn sem handtóku þau en hjónin eru grunuð um njósnir í Svíþjóð og öðru ríki í um tíu ár.

Njósnarinn í Tromsö sagður vera ofursti í GRU

Yfirvöld í Noregi hafa nafngreint rússneskan njósnara sem handtekinn var nýverið í Tromsö. Sá heitir Mikhail Valerievich Mikushin og er fæddur árið 1978 í Rússlandi. Hann er talinn vera ofursti í GRU, leyniþjónustu rússneska hersins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×