Næstversta heimsmeistaramót Íslands undir stjórn Guðmundar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. janúar 2023 09:30 Guðmundur Guðmundsson hefur náð frábærum árangri með íslenska landsliðið en þetta HM er eitt af hans verstu mótum. Vísir/Vilhelm Íslenska karlalandsliðið í handbolta hefur aðeins einu sinni endaði neðar á heimsmeistaramóti undir stjórn Guðmundar Guðmundssonar. Strákarnir okkar enduðu bara í tólfta sæti á heimsmeistaramótinu í Svíþjóð og Þýskalandi því íslenska liðið var það lið í þriðja sæti milliriðlana sem náði slakasta árangrinum á mótinu. Þetta þýðir að Ísland á nú enn minni möguleika á sæti í umspili um laus sæti á ÓLympíuleikunum í París 2024. Íslenska liðið hækkaði sig reyndar um átta sæti frá síðasta heimsmeistaramóti en stefnan hafði verið sett á átta liða úrslitin og að tryggja sér sæti í fyrrnefndi umspili. Það að liðið hafi dottið alla leið niður í tólfta sæti þýðir að íslenska handboltalandsliðið hefur aðeins einu sinni endað neðar á HM undir stjórn Guðmundur Guðmundssonar. Þetta var fimmta heimsmeistaramót Guðmundar með íslenska landsliðið og það er bara mótið í Egyptalandi fyrir tveimur árum sem hefur endað verr. Bæði heimsmeistaramót Guðmundar með danska landsliðið enduðu líka betur. Bestu stórmót íslenska liðsins undir stjórn Guðmundar eru Ólympíuleikarnir 2008 (silfur), Evrópumótið í Austurríki 2010 (brons) og Evrópumótið í Svíþjóð 2002 (fjórða sætið). Guðmundur hefur alls farið með íslenska liðið á fjórtán stórmót og það er aðeins á HM 2021 (20. sæti) og á EM 2004 (13. sæti) sem hann hefur endað neðar með liðið en á þessu heimsmeistaramóti í ár.
Strákarnir okkar enduðu bara í tólfta sæti á heimsmeistaramótinu í Svíþjóð og Þýskalandi því íslenska liðið var það lið í þriðja sæti milliriðlana sem náði slakasta árangrinum á mótinu. Þetta þýðir að Ísland á nú enn minni möguleika á sæti í umspili um laus sæti á ÓLympíuleikunum í París 2024. Íslenska liðið hækkaði sig reyndar um átta sæti frá síðasta heimsmeistaramóti en stefnan hafði verið sett á átta liða úrslitin og að tryggja sér sæti í fyrrnefndi umspili. Það að liðið hafi dottið alla leið niður í tólfta sæti þýðir að íslenska handboltalandsliðið hefur aðeins einu sinni endað neðar á HM undir stjórn Guðmundur Guðmundssonar. Þetta var fimmta heimsmeistaramót Guðmundar með íslenska landsliðið og það er bara mótið í Egyptalandi fyrir tveimur árum sem hefur endað verr. Bæði heimsmeistaramót Guðmundar með danska landsliðið enduðu líka betur. Bestu stórmót íslenska liðsins undir stjórn Guðmundar eru Ólympíuleikarnir 2008 (silfur), Evrópumótið í Austurríki 2010 (brons) og Evrópumótið í Svíþjóð 2002 (fjórða sætið). Guðmundur hefur alls farið með íslenska liðið á fjórtán stórmót og það er aðeins á HM 2021 (20. sæti) og á EM 2004 (13. sæti) sem hann hefur endað neðar með liðið en á þessu heimsmeistaramóti í ár. Versti árangur Íslands á stórmóti undir stjórn Guðmundar Guðmundssonar: 20. sæti á HM í Egyptalandi 2021 13. sæti á EM í Slóveníu 2004 12. sæti á HM í Svíþjóð og Póllandi 2023 11. sæti á HM í Þýskalandi og Danmörku 2019 11. sæti á EM í Austurríki, Noregi og Svíþjóð 2020 10. sæti á EM í Serbíu 2012 9. sæti á ÓL í Aþenu 2004 7. sæti á HM í Portúgal 2003 - Sæti landsliða á HM undir stjórn Guðmundar Guðmundssonar: 5. sæti hjá Danmörku á HM í Katar 2015 6. sæti hjá Íslandi á HM í Svíþjóð 2011 7. sæti hjá Íslandi á HM í Portúgal 2003 10. sæti hjá Danmörku á HM í Frakklando 2017 11. sæti hjá Íslandi á HM í Þýskalandi og Danmörku 2019 12. sæti hjá Íslandi á HM í Svíþjóð og Póllandi 2023 20. sæti hjá Íslandi á HM í Egyptalandi 2021
Versti árangur Íslands á stórmóti undir stjórn Guðmundar Guðmundssonar: 20. sæti á HM í Egyptalandi 2021 13. sæti á EM í Slóveníu 2004 12. sæti á HM í Svíþjóð og Póllandi 2023 11. sæti á HM í Þýskalandi og Danmörku 2019 11. sæti á EM í Austurríki, Noregi og Svíþjóð 2020 10. sæti á EM í Serbíu 2012 9. sæti á ÓL í Aþenu 2004 7. sæti á HM í Portúgal 2003 - Sæti landsliða á HM undir stjórn Guðmundar Guðmundssonar: 5. sæti hjá Danmörku á HM í Katar 2015 6. sæti hjá Íslandi á HM í Svíþjóð 2011 7. sæti hjá Íslandi á HM í Portúgal 2003 10. sæti hjá Danmörku á HM í Frakklando 2017 11. sæti hjá Íslandi á HM í Þýskalandi og Danmörku 2019 12. sæti hjá Íslandi á HM í Svíþjóð og Póllandi 2023 20. sæti hjá Íslandi á HM í Egyptalandi 2021
HM 2023 í handbolta Landslið karla í handbolta Mest lesið Sló rúmlega tuttugu ára gamalt Íslandsmet Sport „Þetta er stærra en að vinna einhverja titla“ Körfubolti „Spiluðum mjög vel í dag“ Enski boltinn Uppgjörið: Ísland - Tyrkland 83-71 | Ísland tryggði sér sæti á EM Körfubolti Dómara refsað vegna samskipta við Messi Fótbolti Sigur Ungverja á Ítalíu dugði skammt Körfubolti Orri og félagar blanda sér í Evrópubaráttuna Fótbolti Góður útisigur hjá lærisveinum Guðmundar Handbolti „Við þurfum annan titil“ Enski boltinn Góðir útisigrar hjá PSG og Juventus Fótbolti Fleiri fréttir Góður útisigur hjá lærisveinum Guðmundar Átján íslensk mörk í stórsigri Kolstad Uppgjörið: Slavia Prag - Valur 22-22 | Valskonur í undanúrslit EHF-bikarsins „Við vorum yfirspenntar“ Óðinn öflugur í sigri og Magdeburg með í toppbaráttunni Dana markahæst í tólfta sigrinum í röð Haukur markahæstur þegar Dinamo náði níu stiga forskoti Segjast ekki eiga pening og konunum fórnað Enn einn stórleikur Elvars og Melsungen áfram á toppnum Elliði frábær þegar Gummersbach valtaði yfir Ljónin frá Löwen Blomberg-Lippe í góðri stöðu í Evrópudeildinni „Eins besta vörn sem við höfum spilað held ég“ „Frammistaða á alþjóðamælikvarða“ Haukar flugu inn í 8-liða úrslitin Uppgjörið: Haukar - Hazena Kynzvart 27-22 | Frækin framganga Hauka dugði því miður ekki til Uppgjörið: Valur - Slavía Prag 28-21 | Valskonur skrefi nær undanúrslitum Þorsteinn Leó og félagar upp í toppsætið Uppgjör: ÍR-ÍBV 34-30 | ÍR-stelpur ekki vandræðum með Eyjakonur í Skógarselinu Vígja Mörthu í goðsagnarhöllina „Stundum reynir á samskipti okkar feðga“ Áhugi Íslendinga heillaði: Ísak hafnaði Noregi til að herma eftir afa Gömlu Haukafélagarnir í stóru hlutverki í sitt hvoru landinu Uppgjörið og viðtöl: HK - KA 33-29 | HK steig stórt skref í átt að sæti í úrslitakeppninni Mögnuð tilþrif Viktors Gísla á topplista EHF Tveir nýliðar úr Haukum í landsliðinu „Vissi ekki hvað þessi sársauki þýddi“ Stór helgi að Hlíðarenda: Stefnan sett á undanúrslit Gríðarleg spenna á toppnum Orri Freyr magnaður þegar það leið yfir annan dómarann Kennir sjálfum sér um ófarir Gísla Sjá meira