Lífið

Bresks leikara saknað eftir fjall­göngu í Kali­forníu

Atli Ísleifsson skrifar
Julian Sands á frumsýningu í Feneyjum árið 2019. Hann hefur leikið í fjölda sjónvarpsþátta og kvikmynda, meðal annars Smallville, Boxing Helena og 24.
Julian Sands á frumsýningu í Feneyjum árið 2019. Hann hefur leikið í fjölda sjónvarpsþátta og kvikmynda, meðal annars Smallville, Boxing Helena og 24. Getty

Breska leikarans Julian Sands er saknað eftir að hann hélt í fjallgöngu í San Gabriel-fjöllunum í suðurhluta Kaliforníu á vesturströnd Bandaríkjanna í síðustu viku.

Tilkynnt var síðastliðinn föstudag að ekkert hafi spurst til 65 ára karlmanns í Baldy Bowl-svæðinu í San Gabriel-fjöllunum, en slæmt veður gekk þá yfir svæðið. Það var svo í gær sem greint var frá því opinberlega að um væri að ræða leikarann Sands.

Sands er þekktur fyrir að hafa farið með hlutverk í vinsælum kvikmyndum og sjónvarpsþáttum á borð við The Killing Fields, A Room with a View, 24, Boxing Helena, Leaving Las Vegas og Smallville.

Leitarlið var sent á vettvang í síðustu viku en varð frá að hverfa um liðna helgi vegna snjóflóðahættu. Leit stendur þó enn yfir þar sem notast er við dróna og þyrlu.

Í tilkynningu frá lögreglustjóranum í San Bernardino-sýslu kemur fram að tilkynnt hafi verið um að Sands væri saknað um kvöldmatarleytið föstudaginn 13. janúar. Þá hafi hafist leit en slæm veðurskilyrði hafi torveldað hana. Reiknað er með að leitarlið á jörðu verði aftur sent af stað þegar veður skánar í fjöllunum.

Sands hefur búið í Los Angeles frá árinu 2020 og lék síðast í dramamyndinni Benediction sem skartaði einnig þeim Jack Lowden og Peter Capaldi í helstu hlutverkum.

Sands fór með hlutverk blóðföður Súperman í Smallville-þáttunum og Vladimir Bierko í 24.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.