Erlent

Niður­læging þing­for­seta­efnis repúblikana hélt á­fram

Kjartan Kjartansson skrifar
Kevin McCarthy (f.m.) ræði við félaga sína á þingfundi í gær þar sem fulltrúadeildin kaus þrisvar um forseta en án afgerandi niðurstöðu.
Kevin McCarthy (f.m.) ræði við félaga sína á þingfundi í gær þar sem fulltrúadeildin kaus þrisvar um forseta en án afgerandi niðurstöðu. AP/Alex Brandon

Pattstaða ríkir enn í fulltrúadeild Bandaríkjaþings eftir að Kevin McCarthy, leiðtoga repúblikana, mistókst enn og aftur að tryggja sér nógu mörg atkvæði flokkssystkina sinna til þess að ná kjöri sem forseti deildarinnar. Ekkert liggur fyrir um hvernig hægt verður að skera á hnútinn.

McCarthy varð fyrsta þingforsetaefni meirihlutaflokks í fulltrúadeildinni til þess að ná ekki kjöri í heila öld þegar nýtt Bandaríkjaþing kom saman á þriðjudag. Hann náði hvorki meirihluta atkvæða þingheims í þremur atkvæðagreiðslum á þriðjudag né þremur til viðbótar í gær.

Staðan þýðir að ekki hefur verið hægt að sverja inn nýja þingmenn. Störf þingnefnda sem eiga að hafa eftirlit með framkvæmdavaldinu liggja í lamasessi og þá geta verðandi þingmenn ekki fengið leynilegar upplýsingar frá leyniþjónstustofnunum eða hernum, að sögn New York Times.

Yfirleitt hefur það verið formsatriði fyrir fulltrúadeildina að kjósa sér forseta. Síðast þurfti fleiri en eina atkvæðagreiðslu árið 1923. Langvinnasta deilan um þingforseta var árið 1855 þegar þrælahald var bitbein þingmanna í aðdraganda borgarastríðsins sem hófst sex árum síðar. Hún varði í tvo mánuði og greiddi þingið atkvæði 133 sinnum.

Byron Donalds, fulltrúadeildarþingmaður repúblikana frá Flórída, var sá sem tuttugu íhaldssömustu repúblikanarnir tefldu fram gegn McCarthy í gær.AP/Jacquelyn Martin

Tapaði atkvæði

Repúblikanar eru aðeins með tíu manna meirihluta í fulltrúadeildinni en tuttugu íhaldssömustu þingmenn flokksins koma í veg fyrir að McCarthy nái kjöri. Þeir hafa ekki gefið sig þrátt fyrir verulegar tilslakanir McCarthys. Þess í stað tilnefndi hópurinn Byron Donalds, félaga sinn frá Flórída, til forsetaembættisins.

Andstaða hópsins, sem nefnir sig Frelsisþinghópinn (e. House Freedom Caucus), þýðir að McCarthy hefur fengið færri atkvæði en demókratinn Hakeem Jeffries í atkvæðagreiðslunum sex til þessa. Hvorugur þeirra hefur náð meirihluta.

Engan bilbug var þó á McCarthy að finna í gærkvöldi. Áður en þingfundi var frestað sagði hann ekkert samkomulag í höfn ennþá en að árangur hefði náðst. Árangurinn var þó ekki meiri en svo að McCarthy tapaði atkvæði eins félaga síns sem sat hjá við eina atkvæðagreiðsluna.

AP-fréttastofan segir að búast megi við löngum þingfundi þegar hann hefst aftur á hádegi að staðartíma í dag. Ekki stóð til að þingið kæmi saman á morgun föstudag en þá verða tvö ár liðin frá árás stuðningsmanna Donalds Trump á þinghúsið.

Tveir af hörðustu andstæðingum McCarthy í þingflokki repúblikana, Matt Gaetz (t.h.) og Jim Jordan (f.m.) ræða saman í fulltrúadeildinni í gær. Gaetz hefur meðal annars sagt að honum sé sama þó að deilurnar leiði til þess að leiðtogi demókrata verði þingforseti.AP/Alex Brandon

Vildi að Trump segði McCarthy að leggja árar í bát

Frelsisþinghópurinn hefur þegar neytt McCarthy til þess að láta undan fjölda krafna þeirra, þar á meðal að aðeins fimm þingmenn þurfi til þess að kalla fram vantraustsatkvæðagreiðslu um þingforseta hvenær sem er. Hópurinn vill einnig ná fram ýmsum breytingum á þingsköpum og fá fleiri sæti í þingnefndum fyrir félaga sína. Eins vill hann að forystusveit flokksins skipti sér ekki af prófkjörum um opin sæti í kjördæmum þar sem repúblikanar eiga sigurinn vísan.

Þingmennirnir í hópnum eru taldir þeir tryggustu Trump, fyrrverandi forseta, í þingflokknum. Engu að síður nýtur McCarthy stuðnings Trumps til að verða forseti. Sá stuðningur virðist þó lítið hafa að segja. Lauren Boebert, þingkona frá Colorado, hvatti Trump til þess að segja McCarthy að gefast upp.

„Þú ert ekki með nógu mörg atkvæði og það er kominn tími til að draga sig í hlé, herra,“ vildi Boebert að Trump segði McCarthy.


Tengdar fréttir

Trump kallar eftir stuðningi við McCarthy

Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna og núverandi forsetaframbjóðandi, kallar eftir því að Repúblikanar í fulltrúadeild Bandaríkjaþings fylki liði við bak Kevin McCarthy, leiðtoga þingflokksins. McCarthy vill verða forseti fulltrúadeildarinnar en mistókst það í þremur atkvæðagreiðslum í gær.

McCarthy í erfiðri stöðu og líkur á óreiðu á þingi

Nýtt kjörtímabil hefst í Bandaríkjunum á morgun og munu Demókratar þá formlega missa meirihluta í fulltrúadeildinni. Kevin McCarthy, leiðtogi Repúblikana í fulltrúadeildinni, hefur unnið hörðum höndum að því að tryggja sér atkvæði 218 þingmanna svo hann geti orðið þingforseti en svo virðist sem hann nái því ekki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×