Innlent

Ætla ekki að láta kyrrt liggja fyrr en full­­nægjandi svör hafa borist

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar

Einungis ófullnægjandi gögn hafa borist ríkislögreglustjóra frá lögreglunni í dóminíska lýðveldinu í máli Hrafnhildar Lilju sem myrt var fyrir fjórtán árum. Þetta segir yfirlögregluþjónn sem ætlar ekki að láta kyrrt liggja fyrr en fullnægjandi svör hafi borist. 

Í haust greindi lögreglan frá því að hún ætlaði að fara aftur yfir gögn í máli Hrafnhildar Lilju Georgsdóttur sem myrt var í Dóminíska lýðveldinu fyrir fjórtán árum. Það ákvað lögreglan að gera eftir að móðir Hrafnhildar steig fram í viðtali hér á Stöð 2, ásamt systur sinni, þar sem hún sagði íslensk stjórnvöld hafa brugðist í málinu með því að beita sér aldrei fyrir rannsókn þess.

Málið telst óupplýst í dag, morðinginn gengur enn laus og fjölskyldan aldrei fengið lúkningu. Þær vilja að málið verði skoða aftur enda telja þær að rannsókn hafi með öllu verið ófullnægjandi og þær fengið lítil sem engin svör um málavexti.

Ítarlegt viðtal við móður Hrafnhildar Lilju og systur hennar má sjá hér að neðan:

Þegar lögregla fór að skoða málið, eftir að viðtalið var birt, kom í ljós að íslensku lögreglunni hefði hvorki borist svör né gögn sem óskað var eftir frá dóminíska lýðveldinu á sínum tíma.

„Í tilefni af umfjölluninni þá fórum við að skoða þetta mál og komumst að því að það hafði ekki verið svarað öllum fyrirspurnum íslenskra stjórnvalda á þeim tíma þannig við ákváðum að fara aftur af stað með það,“ sagði Sigríður Björk Guðjónsdóttir, ríkislögreglustjóri í haust.

Íslenska lögreglan hefur síðan þá ítrekað óskað eftir gögnum og upplýsingum frá lögreglunni hið ytra en ekki fengið fullnægjandi svör.

Ætla að fá þær upplýsingar sem lögreglan hefur óskað eftir

„Við erum búin að vera í sambandi við þau ítrekað núna á undanförnu. Þetta virðist taka þau verulega mikinn tíma að finna þau gögn sem við höfum óskað eftir. Við vorum síðast í sambandi við þau rétt fyrir jól og höfum verið í sambandi líka við fjölskyldu viðkomandi. En það hafa ekki komið nein fullnægjandi gögn að okkar mati þannig þetta mál er enn í gangi og við ætlum að fá þær upplýsingar sem við höfum óskað eftir,“ sagði Karl Steinar Valsson, yfirlögregluþjónn hjá ríkislögreglustjóra.


Tengdar fréttir

„Hún er tekin af lífi og það gerir enginn neitt“

Móðir íslenskrar konu sem myrt var á ferðalagi um heiminn segir að íslensk stjórnvöld hafi brugðist fjölskyldunni með því að beita sér aldrei fyrir rannsókn málsins. Hún vill að málið verði opnað á ný og rannsókn tekin upp, en morðinginn gengur enn laus.

Lög­reglan mun skoða gögn í máli Hrafn­hildar Lilju og óska eftir upp­lýsingum frá Dóminíska lýð­veldinu

Lögreglan á Íslandi vinnur nú að því að skoða gögn í máli Hrafnhildar Lilju Georgsdóttur sem myrt var í Dóminíska lýðveldinu fyrir fjórtán árum. Lögreglan mun senda fyrirspurnir út og óska eftir upplýsingum um málið. Þetta segir yfirlögregluþjónn alþjóðasviðs ríkislögreglustjóra sem telur lögregluna ekki hafa þær upplýsingar sem hún óskaði eftir í málinu á sínum tíma

Fengu ekki full­nægjandi svör á sínum tíma: „Við gerum aðra at­lögu“

Lögreglan á Íslandi hefur ákveðið að gera aðra tilraun til þess að fá skýringar í máli Hrafnhildar Lilju Georgsdóttur sem myrt var í Dóminíska lýðveldinu fyrir fjórtán árum. Ríkislögreglustjóri segir að óskað verði eftir frekari gögnum og svörum sem ekki bárust á sínum tíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×