Erlent

Pútín, Lavrov og Shoigu allir í Hvíta-Rússlandi

Samúel Karl Ólason skrifar
Vladimír Pútín, forseti Rússlands, fór síðast til Hvíta-Rússlands árið 2019. Síðan þá hefur Lúkasjenka ítrekað ferðast til Rússlands og hitt Pútín.
Vladimír Pútín, forseti Rússlands, fór síðast til Hvíta-Rússlands árið 2019. Síðan þá hefur Lúkasjenka ítrekað ferðast til Rússlands og hitt Pútín. AP/Gavriil Grigorov

Vladimír Pútín, forseti Rússlands, fer í dag á fund Alexanders Lúkasjenka, einræðisherra Hvíta-Rússlands. Þetta er í fyrsta sinn í þrjú ár sem Pútín sækir Lúkasjenka heim en hann er einn af fáum bandamönnum Pútíns.

Fyrr í dag fóru bæði Sergei Lavrov, utanríkisráðherra, og Sergei Shoigu, varnarmálaráðherra, til Hvíta-Rússlands en ráðamenn í Úkraínu hafa varað við því undanfarna daga að Rússar gætu mögulega verið að undirbúa aðra atlögu að Kænugarði frá Hvíta-Rússlandi.

Valerí Salúsjní, yfirmaður herafla Úkraínu, sagðist í síðustu viku handviss um að Rússar muni gera aðra atlögu að Kænugarði. Þeir væru að þjálfa og vopna um tvö hundruð þúsund nýja hermenn og muni reyna að nota þá til að opna nýja víglínu á nýju ári.

Hernaðarsérfræðingar og ráðamenn á Vesturlöndum hafa margir lýst yfir efasemdum um þessar yfirlýsingar Úkraínumanna og segja óljóst hvort rússneski herinn hafi burði til að opna nýja víglínu að svo stöddu.

Sjá einnig: Viss um að Rússar geri aðra atlögu að Kænugarði

Þá hefur lengi verið talið að Pútín vilji að Lúkasjenka taki beinan þátt í innrás Rússa í Úkraínu en einræðisherrann hefur forðast það hingað til. Það er ekki að ástæðulausu en her Hvíta-Rússlands er tiltölulega lítill og óreyndur en hann inniheldur eingöngu um 45 þúsund hermenn og þar á meðal menn sem hafa verið skikkaðir til herþjónustu.

Hermenn ríkisins þykja þar að auki agalausir og illa þjálfaðir. Lukasjenka er þar að auki ólíklegur til að vilja fara í herkvaðningu af ótta við að vopnvæða stóran hluta þjóðarinnar.

Sergei Surovikin, sem stýrir innrásinni í Úkraínu, og Sergei Shoigu, varnarmálaráðherra Rússlands.AP/Gavriil Grigorov

Rússar fluttur hermenn aftur til Hvíta-Rússlands í október og eru þeir sagðir eiga að stunda heræfingar þar með her Hvíta-Rússlands. Úkraínumenn segja samkvæmt Reuters að viðræðurnar í dag snúist um frekari árásir gegn Úkraínu og aðkomu hers Hvíta Rússlands að þeim.

AP fréttaveitan segir að viðræður Pútíns og Lúkasjenka muni mögulega snúast um það að Hvít-Rússar eigi líklega vopn og skotfæri frá tímum Sovétríkjanna sem Rússar gætu notað. Fregnir hafa borist af því að Rússa skorti skotfæri fyrir stórskotalið.

Sjá einnig: Farnir að nota fjörutíu ára sprengikúlur

Pútín fór síðast til Hvíta-Rússlands árið 2019. Síðan þá hefur Lúkasjenka ítrekað farið til Rússlands og hitt Pútín þar.


Tengdar fréttir

Dróna­á­rásir á Kænu­garð í morguns­árið

Loftvarnaflautur hafa ómað í úkraínsku höfuðborginni Kænugarði í morgun vegna drónaárása rússneska hersins. Vítalí Klitschko, borgarstjóri Kænugarðs, segir að fjöldi sprenginga hafi heyrst í höfuðborginni í morgun.

Búist við auknum sóknarþunga Rússa

Valdímír Pútin Rússlandsforseti hefur fundað með herforingjum sínum nú þegar hávær orðrómur er um að Rússar muni gera metnaðarfulla tilraun til að snúa vörn í sókn á vígvellinum.

Send­a best­a loft­varn­ar­kerf­ið til Úkra­ín­u

Ríkisstjórn Joe Biden, forseta Bandaríkjanna, vinnur að því að senda Úkraínumönnum svokallað Patriot-loftvarnarkerfi. Það er háþróað kerfi sem er sagt sérstaklega skilvirkt við það að skjóta niður stýri- og eldflaugar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×