Neuer fótbrotnaði á skíðum og verður ekki meira með á leiktíðinni Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 10. desember 2022 12:06 Manuel Neuer verður frá keppni næstu mánuðina. Christian Charisius/Getty Images Segja má að Manuel Neuer, markvörður þýska landsliðsins í fótbolta og Bayern München hafi farið úr öskunni í eldinn. Hann verður ekki meira með á leiktíðinni þar sem honum tókst að fótbrotna á skíðum eftir að Þýskaland komst ekki upp úr riðli sínum á HM.
Þýskaland sat eftir með sárt ennið í E-riðli en óvænt tap liðsins gegn Japan í fyrstu umferð kostaði liðið sæti í 16-liða úrslitum á HM sem nú fer fram í Katar. Japan vann riðilinn og Spánn endaði í 2. sæti með betri markatölu. Hinn 36 ára gamli Neuer stóð vaktina í marki Þýskalands á mótinu. Eftir að Þýskaland féll úr keppni vildi hann dreifa huganum og skellti sér því á skíði. Það fór ekki betur en svo að Neuer fótbrotnaði og verður nú frá keppni það sem eftir lifir tímabils. View this post on Instagram A post shared by Manuel Neuer (@manuelneuer) Neuer sjálfur greindi frá þessu á Instagram-síðu sinni en hann hefur þegar farið í aðgerð sem ku hafa fengið vel. Hann mun þó ekki spila meira fyrr en haustið 2023 og því þarf Bayern að gera sitt besta til að verja Þýskalandsmeistaratitilinn án hans. Það ætti ekki að reynast liðinu of erfitt en gott gengi í Meistaradeild Evrópu verður mun erfiðara án markvarðarins magnaða.
Fótbolti Þýski boltinn HM 2022 í Katar Mest lesið Stefán benti á tattúið og minntist frænku sinnar Enski boltinn Neyddir til að spila í miðri þjóðarsorg Handbolti Útskýrði af hverju Burn var dekkaður af mun lægri manni Enski boltinn Segir Arnór líta ruddalega vel út Fótbolti Players endar í einvígi: „Halda allir að hann vinni“ Golf Sjáðu Albert skora gegn Juventus Fótbolti „Rjóminn á kökuna fyrir okkur“ Íslenski boltinn Staðráðinn í að spila aftur: „Ég var nálægt því að deyja“ Enski boltinn McIlroy vann einvígið en Spaun fór í vatnið Golf Hættu leik eftir að áhorfendur kveiktu í stúkunni Fótbolti Fleiri fréttir Frá Króknum á Hlíðarenda Reynslumikill Svíi á að styrkja miðsvæði Fram Fyrirliða Forest bætt við enska hópinn Víkingur missir undanúrslitasætið Aðeins þúsund geta mætt á leikina mikilvægu við Noreg og Sviss Þriðja þáttaröðin af LUÍH hefst í kvöld: „Mögulega besta móment lífs míns“ Segir Arnór líta ruddalega vel út Ramos rekinn út af fyrir að sparka í rass mótherja Staðráðinn í að spila aftur: „Ég var nálægt því að deyja“ Útskýrði af hverju Burn var dekkaður af mun lægri manni Fyrirliði Kósóvó fór meiddur af velli „Vil ekki fara að sofa því mér líður eins og mig sé að dreyma“ Sjáðu Albert skora gegn Juventus Stefán benti á tattúið og minntist frænku sinnar Ari afmælisbarn búinn að semja við Elfsborg „Rjóminn á kökuna fyrir okkur“ Hættu leik eftir að áhorfendur kveiktu í stúkunni Liverpool leiði kapphlaupið um Guehi Meiðslin muni að öllum líkindum teygja sig inn í landsleikjapásuna Atalanta mistókst að hirða toppsætið af Inter Fulham nær Evrópu eftir sigur á Tottenham Ótrúleg endurkoma skaut Börsungum á toppinn „Við áttum skilið að vinna í dag“ United nálgast efri hlutann Hinrik farinn til Noregs frá ÍA Stólarnir sóttu sinn fyrsta sigur Albert gulltryggði sigurinn gegn Juventus Sjötíu ára titlaþurrð á enda Brynjólfur í hetjuhlutverkinu í hollenska boltanum Merino aftur hetja Arsenal Sjá meira