Körfubolti

Hetju­leg endur­koma Lakers til einskis þar sem liðið sprakk í fram­lengingu

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Það gekk ekkert hjá Lakers að reyna stöðva Joel Embiid í nótt.
Það gekk ekkert hjá Lakers að reyna stöðva Joel Embiid í nótt. Tim Nwachukwu/Getty Images

Los Angeles Lakers var sjö stigum undir þegar aðeins 28 sekúndur voru eftir af leik liðsins við Philadelphia 76ers í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Lakers tókst að koma leiknum í framlengingu en þar var öll orka liðsins búin og 76ers vann á endanum 11 stiga sigur.

Alls fóru tíu leikir fram í NBA deildinni í nótt og var af nægu að taka. Anthony Davis og LeBron James sneru aftur í lið Lakers en enn og aftur virtist slakur þriðji leikhluti ætla að kosta liðið.

Á einhvern undraverðan hátt tókst LeBron og félögum að komast í framlengingu en þar var öll orka úr liðinu. Staðan 120-120 að loknum venjulegum leiktíma en 133-122 eftir framlenginguna. Þetta var 15. tap Lakers á tímabilinu og líkurnar á að liðið komist í úrslitakeppnina verða minni og minni með hverju tapinu.

Hjá Lakers var Davis stigahæstur með 31 stig og 12 fráköst á þeim 36 mínútum sem hann spilaði. Austin Reaves kom óvænt þar á eftir með 25 stig á meðan LeBron skoraði 23. Þá var Russell Westbrook með þrefalda tvennu: 12 stig, 11 fráköst og 11 stoðsendingar.

Hjá 76ers var Joel Embiid með 38 stig og 12 fráköst á meðan De‘Anthony Melton skoraði 33 og James Harden 28 ásamt því að gefa 12 stoðsendingar.

Milwaukee Bucks lagði Dallas Mavericks með minnsta mögulega mun, lokatölur 106-105. Leikurinn var eins og lokatölur gefa til kynna æsispennandi en Brook Lopez skoraði sigurkörfuna þegar rúmlega tvær sekúndur voru til leiksloka.

Luka Dončić náði skoti að körfunni áður en tíminn rann út en það var lengst utan af velli og hvergi nálægt því að fara ofan í. Frábær fjórði leikhluti hjá Bucks skilaði því sigrinum en Dallas var 11 stigum yfir þega hann hófst.

Giannis Antetokounmpo var stigahæstur hjá Bucks með 28 stig ásamt því að taka 10 fráköst. Þar á eftir kom Khris Middleton með 19 stig. Hjá Dallas skoraði Luka 33 stig og gaf 11 stoðsendingar.

Kevin Durant skoraði 34 stig og Kyrie Irving 33 þegar Brooklyn Nets lagði Atlanta Hawks 120-116. Trae Young skorðai 33 stig í liði Hawks.

Zion Williams skoraði 35 stig þegar New Orleans Pelicans vann Phoenix Suns 128-117.Deandre Ayton skoraði 25 stig og tók 14 fráköst í liði Suns.

Gott gengi Sacramento Kings heldur áfram, liðið vann Cleveland Cavaliers 106-95 í nótt. Liðssigur þar sem Harrison Barnes skoraði 20 stig í liði Kings, Kevin Huerter gerði 19 stig á meðan þeir Domantas Sabonis og Keegan Murray skoruðu 18 stig hvor. Sabonis tók einnig 18 fráköst.

Tíst

Þá skoraði Julius Randle 33 stig í 121-102 sigri New York Knicks á Charlotte Hornets.

Önnur úrslit

Indiana Pacers 121-111 Washington Wizards

Orlando Magic 113-109 Toronto Raptors

Memphis Grizzlies 114-103 Detroit Pistons

Utah Jazz 108-118 Minnesota Timberwolves




Fleiri fréttir

Sjá meira


×