Skoðun

Full­veldið er hjá þjóðinni

Katrín Oddsdóttir skrifar

- Opið bréf frá Stjórnarskrárfélaginu

Góðir landsmenn.

Til hamingju með fullveldisdaginn, 1. desember. Ísland varð fullvalda ríki 1918. Því hefur verið fagnað árlega ávallt síðan. Svo er það fullveldi þjóðarinnar, fullveldi fólksins í landinu. Þar sem er fulltrúalýðræði þarf að minnast þess á hverjum degi að allt vald stafar frá þjóðinni. Enginn fer með opinbert pólitískt vald á Íslandi nema í umboði kjósenda. Í því ljósi er það þjóðin sem er fullvalda. Hún á lokaorðið í grundvallarmálum samfélagsins.

Stjórnarskrárferli hófst á Íslandi upp úr hruni bankanna árið 2008, hruni sem einnig var siðferðilegt og pólitískt. Stjórnmálastéttin stóð uppi rúin trausti og fjármálakerfið í rúst. Ísland varð alræmt um allan heim. Stjórnarskrárferlið vakti hins vegar athygli og aðdáun umheimsins, og gerir enn. Það fæddi af sér tillögu að nýrri stjórnarskrá, skjal sem án efa verður talið eitt hið merkasta í sögu landsins. Alþingi óskaði sjálft eftir stjórnarskrártillögunni á grundvelli Þjóðfundarins 2010 og lagði hana svo í dóm þjóðarinnar. Þjóðin samþykkti 20. október 2012, með yfirgnæfandi meiri hluta atkvæða, að sú tillaga skyldi verða grundvöllur nýrrar stjórnarskrár Íslands.

Tíu ár eru frá þjóðaratkvæðagreiðslunni um nýju stjórnarskrána en úrslit kosningarinnar hafa enn ekki verið virt. Slíkt má ekki að gerast í lýðræðisríki. Í íslensku samfélagi og stjórnmálum eru öfl sem standa gegn fullveldisrétti þjóðarinnar og önnur sem heykjast á að verja hann. Sagan af því hvernig reynt hefur verið að koma í veg fyrir að fólkið í landinu eignaðist sína eigin stjórnarskrá er orðin raunalega löng og ljót. Hún ber íslenskum ráðamönnum, stjórnmálamenningu landsins og stjórnsýslu ófagurt vitni og undirstrikar þörfina á að skipta út bráðabirgðastjórnarskránni frá 1944 fyrir nútímalega og lýðræðislega stjórnarskrá.

Frá Þjóðfundi árið 2010.Aðsend

Stjórnarskrárfélagið heitir á fólkið í landinu að fylkja sér að baki þeim sem berjast fyrir nýju stjórnarskránni og eru reiðubúin að verja og sækja fullveldisrétt þjóðarinnar. Í orði og í verki og án þess að hika. Í lýðræðisríki á ekki og má ekki gefa eftir fullveldi þjóðarinnar. Lýðræðislegar grundvallarreglur verður að virða, alltaf og afdráttarlaust. Þjóðin er stjórnarskrárgjafinn.

Nýtilkynnt áform forsætisráðherra um að ljúka málinu í samráði við almenning á næsta ári geta skilað árangri ef unnið er af heilindum. Í því felst að vinna með þær tillögur sem kjósendur samþykktu í þjóðaratkvæðafgreiðslu að skyldu verða grundvöllur nýrrar stjórnarskrár Íslands. Fullfrágengnar yrðu þær síðan enn lagðar í dóm kjósenda.

Víkjum sérhagsmunum og andlýðræðislegum stjórnarháttum til hliðar og lögfestum nýju stjórnarskrána með lýðræði og lýðræðislegar grundvallarreglur að leiðarljósi. Minnumst svo á hverju ári fullveldis þjóðarinnar, stjórnarskrárdagsins, 20. október.

F. h. Stjórnarskrárfélagsins,

Katrín Oddsdóttir, formaður, Hjörtur Hjartarson, Ingólfur Hermannsson, Kristín Erna Arnardóttir, Sigríður Ólafsdóttir, Sigurður Hr. Sigurðsson, Þórir Baldursson




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×