Skoðun

Ekki of seint að gera betur

Inga Sæland skrifar

Þann 10. nóvember sl. lagði ég fram breytingartillögu við frumvarp fjármálaráðherra til fjáraukalaga. Þar var lagt til að eingreiðsla til öryrkja yrði hækkuð úr 27.772 krónum skatta og skerðingalaust í 60.000 krónur. Einnig lagði ég til að skatta og skerðingalaus eingreiðsla að sömu fjárhæð yrði veitt til þeirra 6.000 ellilífeyrisþega sem enga aðra framfærslu hafa en berstrípaðar greiðslur Tryggingastofnunar. Þar er um að ræða einstaklinga sem áður voru öryrkjar en við 67 ára aldur urðu „stálheilbrigðir“ eldri borgarar og í stað greiðslu frá TR vegna örorku fá nú greiðslu þaðan sem ellilífeyri. Sú greiðsla er lægri en greiðslan vegna örorkunnar var. Einnig eru í þessum sárafátækasta hópi eldra fólks fullorðnar konur sem eyddu starfsæviárum sínum í hið vanþakkláta starf heimavinnandi húsmóður. Gamlar konur í dag sem eiga engin réttindi úr lífeyrissjóði en eru kyriflega múraðar inni í rammgerðri fátæktargildrunni sem sjórnvöld hafa múrað um svo allt of marga.

Á fundi fjárlaganefndar Alþingis í gærmorgun var svo samþykkt að greiða 60.300 króna eingreiðslu til öryrkja í desember. Ákvörðun sem er byggð á breytingartillögu minni við fyrirliggjandi frumvarpi til fjáraukalaga hvað lítur að skatta og skerðingalausri greiðslu til öryrkja. Þann hluta ber að þakka og miður að þurfa á sama tíma að fordæma þau vinnubrögð nefndarinnar að hundsa enn og aftur aldraða í sárri neyð. Enn og aftur að mismuna þeim og snúa blinda auganu að vanmætti þeirra og bágindum.

Það myndi kosta ríkissjóð um 360 millj. kr. að koma til móts við þennan verst setta hóp eldra fólks. Hvernig getur það vafist fyrir fjármálaráðherra að hjálpa þeim? Hann sem hefur óskað umboðs í fjáraukanum upp á 6 milljarða króna til að fjárfesta í nýju höll Landsbankans á Austurbakka. Það sem ég kalla Snobb-Hill og ekkert annað. Það vefst ekki fyrir ríkisstjórninni að lækka bankaskatt um milljarða króna hjá moldríkum fjármálastofnunum sem eru nú í óðaverðbólgu og okurvöxtum að maka krókinn sem aldrei fyrr á kostnað skuldsettra heimila og fyrirtækja. Það hefur heldur ekki vafist fyrir þeim að lækka veiðigjöldin á stórútgerðina eins og raunverulega var gert á síðasta kjörtímabili.

Það er kaldhæðnislegt í meira lagi að ráðherra málaflokksins skuli reyna að réttlæta það hvernig hann ætlar að skilja þennan fátækasta hóp aldraðra útundan með þeim rökum, að lögunum hafi verið breytt til batnaðar fyrir þau á dögunum. Staðreyndin er hins vegar sú að sá hópur sem breytingartillaga mín tekur til, er ekkert betur settur þótt lögunum hafi verið breytt. Grunnframfærsla þeirra er sem fyrr, langt undir fátæktarmörkum.

Ég skora hér með á alla þá sem hafa vald til, að sýna gæsku og mannúð fyrir jólin. Það er aldrei of seint að gera betur

Höfundur er formaður Flokks fólksins.




Skoðun

Skoðun

Þöggun

Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir,Margrét Kristín Blöndal,Margrét Rut Eddudóttir,Lukka Sigurðardóttir,Sigtryggur Ari Jóhannsson,Halldóra Jóhanna Hafsteins Âû skrifar

Sjá meira


×