Innlent

Segir lög­reglu­mann hafa brotið tölvu­skjá sinn á bjór­kvöldi í sal Gróttu

Margrét Björk Jónsdóttir skrifar
Ísleifur var að skemmta á bjórkvöldi menntaskólanema í sal Gróttu á Seltjarnarnesi.
Ísleifur var að skemmta á bjórkvöldi menntaskólanema í sal Gróttu á Seltjarnarnesi. Instagram

Rapparinn Ísleifur Eldur Illugason segir lögreglumann hafa brotið skjá tölvu sinnar síðastliðið föstudagskvöld. Ísleifur var að skemmta á bjórkvöldi menntaskólanema í sal Gróttu á Seltjarnarnesi. Fjölmennt lið lögreglu mætti á svæðið með mikinn viðbúnað og leysti upp samkvæmið.

Greint hefur verið frá því að mikil ölvun hafi verið á staðnum og fjölmargir menntaskólanemar á aldrinum sextán til sautján ára hafi verið meðal gesta. Íþróttafélagið Grótta sendi frá sér yfirlýsingu í kjölfar málsins þar sem þau segjast hafa verið nörruð til að leigja ungmennum salinn.

Hrópaði og beindi að honum piparúða

Ísleifur birti færslu á Instagram í dag þar sem hann sakar lögreglumann um að hafa brotið skjá á tölvunni sinni. Hann staðfestir þetta í samtali við fréttastofu og sendi myndband af atvikinu sem sjá má hér að neðan.

„Já, neðsti parturinn á skjá tölvunnar brotnaði við harklegar aðfarir lögreglumanns sem skellti tölvunni aftur. Hann var allt í einu mættur, hrópaði á mig og skipaði mér að hætta að spila. Svo skellti hann aftur tölvunni ansi harkalega og beindi að mér piparúða eða einhverju. Ekki veit ég hvers vegna, það var alveg óskiljanlegt," segir Ísleifur. 

Þetta gerðist á nokkrum sekúndum en ég var hvorki að mótmæla né streitast á móti á nokkurn hátt.

Ísleifur segist hafa sent lögreglunni kvörtun og beðið um viðbrögð og viðtal vegna atviksins. Hann hafi enn ekki fengið nein viðbrögð.

Varð ekki var við neitt óeðlilegt

Aðspurður um hvernig stemningin hafi verið þetta kvöld og ástæður þess að lögreglan mætti á svæðið segist hann ekki hafa hugmynd um það.

„Ég veit minnst um þetta kvöld, enda átti ég engan þátt í að skipuleggja það og var bara ráðinn til að spila. Þetta var bara venjulegt bjórkvöld, sýndist mér, eins og allir framhaldsskólanemar þekkja,“ segir Ísleifur. Hann segist jafnframt ekki hafa orðið var við neitt óeðlilegt og engan æsing. „Koma lögreglunnar var það eina óvenjulega við þetta kvöld og sérstaklega hversu margir mættu.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×