Innlent

Sjá mörg tækifæri til frekari samvinnu ríkjanna

Samúel Karl Ólason skrifar
Sanna Marin og Katrín Jakobsdóttir.
Sanna Marin og Katrín Jakobsdóttir. Vísir/Vilhelm

Sanna Marin og Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherrar Finnlands og Íslands, segjast sjá mörg tækifæri til nánara samstarfs ríkjanna tveggja á hinum ýmsu sviðum. Sanna Marin kom til íslands í vinnuheimsókn í dag og fundaði með Katrínu.

Forsætisráðherrarnir ræddu við blaðamenn í dag en þá sagði Katrín þær hafa átt góðan fund. Þær hefðu meðal annars rætt mögulega styrkingu sambands Finnlands og Íslands, þó að hefði verið mjög gott í 75 ár. Það væru mörg svið þar sem ríkin gætu starfað nánar saman.

Meðal annars nefndi Katrín menntun, kvennaréttindi, geðheilsu ungs fólks þar sem vandamálin væri sambærileg í báðum ríkjum og veðurfarsbreytingar, þar sem Finnland og Ísland hefðu sambærileg markmið og vel væri hægt að deila þekkingu milli ríkja.

Sjá einnig: Hádegisspjall Katrínar og Sönnu

Katrín sagði einnig að ómögulegt væri að tala ekki um öryggi í Evrópu um þessar mundir. Hún nefndi að Ísland hefði verið eitt af fyrstu ríkjunum til að samþykkja aðild Finna að Atlantshafsbandalaginu og að hún vonaðist til þess að umsóknarferlinu lyki sem fyrst.

Klippa: Tækifærin víða hjá Íslandi og Finnlandi

Sanna Marin sagði Katrínu hafa ferðast mörgum sinnum til Finnlands og það væri ánægjulegt að geta heimsótt hana í Reykjavík. Finnland og Ísland hefðu lengi átt í góðu samstarfi og nú væri verið að halda upp á 75 ára afmæli pólitísks samstarfs ríkjanna.

Hún sagði Finna og Íslendinga eiga margt sameiginlegt og mörg tækifæri til frekara samstarfs. Hún fór sömuleiðis yfir nokkur af þeim málefnum sem Katrín hafði nefnt eins og umhverfismál og geðheilbrigði.

Þá þakkaði hún fyrir skjót viðbrögð Íslendinga við aðildarumsókna Finna og Svía í NATO.

Marin sagði þær Katrínu hafa rætt málefni Úkraínu og Rússlands og hinar geópólitísku breytingar sem væru að eiga sér stað um heiminn allan. Heimurinn hefði gengið í gegnum margar krísur á undanförnum árum. Tryggja þyrfti að Evrópa gæti orðið meira sjálfbær varðandi orku, matvæli, varnir og tækni og ríki Evrópu þyrftu að reiða sig minna á alræðisríki á þessum sviðum.

Hún sagði einnig að hana hlakkaði til að skoða Reykjavík betur og heimsækja íslenskt fólk.


Tengdar fréttir

Bein útsending: Hádegisspjall Katrínar og Sönnu

Hádegisspjall Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra Íslands, og Sönnu Marinar, forsætisráðherra Finnlands fer fram í dag klukkan 12:30 og verður sýnt frá því í beinni útsendingu hér á Vísi. Saman munu þær ræða um stjórar áskoranir og tækifæri samtímans. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×