Tengsl lífsins, dauðans og þess sem bíður handan dauðans Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 16. nóvember 2022 15:31 Jón Sæmundur Auðarson opnar sýninguna Litandi, litandi, litandi í Listasal Mosfellsbæjar. Jóni Sæmundi Auðarsyni er margt til lista lagt en hann opnar sýningu næstkomandi föstudag 18. nóvember sem ber nafnið Litandi, litandi, litandi. Fer hún fram í Listasal Mosfellsbæjar og er jafnframt síðasta sýning ársins hjá þeim.
Það verður nóg um að vera á opnuninni sem verður á milli klukkan 16:00 og 18:00 en Teitur Magnússon verður viðstaddur og mun spila lög af nýjustu plötu sinni. Hann og Jón Sæmundur hafa sameinað krafta sína í gegnum tíðina þar sem Jón hefur meðal annars hannað plötuumslög fyrir Teit og málað myndir í tengslum við það. Plötuumslag fyrir Teit Magnússon og plötuna 33 hannað og málað af Jóni Sæmundi. Í fréttatilkynningu segir meðal annars: „Jón Sæmundur er kröftugur listamaður sem er bæði þekktur í heimi myndlistar og tónlistar. Viðfangsefni verka hans á sýningunni eru andar en tengsl lífsins, dauðans og þess sem bíður handan dauðans hafa verið listamanninum hugleikin um langt skeið.“ View this post on Instagram A post shared by Jón Sæmundur (@jonsaemundur) Jón Sæmundur var meðlimur hljómsveitarinnar Dead Skeletons og fyrir tólf árum byrjaði hann að mála einn anda á striga í upphafi hverra tónleika. Hann segir þetta hafa hjálpað sér að undirbúa sig andlega fyrir tónleikana og komast yfir sviðsskrekk. Andarnir fylgja Jóni enn í dag í listsköpun hans og nú ekki bara fyrir tónleika, heldur hvenær sem andinn kemur yfir hann. View this post on Instagram A post shared by Jón Sæmundur (@jonsaemundur) „Frá því að ég byrjaði að vinna þessa anda hef ég alltaf gefið þeim lýsandi titla sem enda á -andi. Litandi hefur komið nokkrum sinnum fyrir í eldri verkum og fannst mér hann viðeigandi núna og líka hversu margslunginn hann er. Andar í lit, ég litandi og andlit andans,“ segir Jón Sæmundur aðspurður um hvaðan titill sýningarinnar kemur. Manns andarnir eru ekki eina viðfangsefni hans. „Einnig verð ég með nokkra hestsanda en það er sterk tenging þar við Mosfellssveitina þar sem ég fór stundum á hestbak með frændfólki mínu Mumma og Ósk í Lágholti og man ég þá sérstaklega eftir hestunum Hrímni, Lýsingi og Ugga sem koma fyrir á sýningunni,“ bætir Jón Sæmundur við að lokum. Andar eru Jóni Sæmundi hugleiknir og nokkrir hest-andar koma fyrir á sýningunni. Síðasti sýningardagur er 16. desember. Listasalur Mosfellsbæjar er staðsettur inn af Bókasafni Mosfellsbæjar, Þverholti 2. Opið er kl. 9-18 á virkum dögum og kl. 12-16 á laugardögum. Ókeypis og öll velkomin.
Myndlist Tónlist Menning Tengdar fréttir „Listin er speglun á mínum innri talandi rafmagnaða helli“ Listin og lífið dansa saman skemmtilegan dans og sumir halda því fram að listina sé að finna allt í kringum okkur. 22. desember 2021 11:30 Baggalútur afhjúpar samstarf við frægan erlendan listamann Ástsæla og sívinsæla sveitin Baggalútur var að senda frá sér myndband af áhugaverðum blaðamannafundi þeirra. Ástæðan er komandi jólatónleikatörn sveitarinnar og samstarf við tékkneska listamanninn og hönnuðinn Krištof Kintera.. 10. nóvember 2022 12:04 Reynir að gera köngulærnar eins girnilegar og hægt er Listakonan Helena Margrét fann fyrir keppnisskapi í listinni á sínum yngri árum en hún stendur nú fyrir einkasýningu í Ásmundarsal og tekur þátt í sýningum víða um heiminn á næstunni. Blaðamaður heyrði í henni og fékk að heyra nánar frá listinni og lífinu. 9. nóvember 2022 14:31 Ást og friður birtist sem dúfur sem róta í rusli „Ég var nú mjög snemma búin að ákveða að listin væri það sem ég vildi leggja fyrir mig, enda var ég alltaf að teikna og búa eitthvað til þegar ég var barn,“ segir listakonan Auður Lóa Guðnadóttir en hún var að opna sýninguna Be Mine í Gallerí Þulu. 8. nóvember 2022 17:00 Skemmtilegt þegar fólk fær að gera eitthvað meira en bara að horfa Þórdís Erla Zoega hefur átt viðburðaríkt ár þar sem hún var meðal annars valin bæjarlistarmaður Seltjarnarnesbæjar, setti upp sýningu í Kaupmannahöfn og opnaði einkasýninguna Spaced Out í Berg Contemporary. Þórdís Erla er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst. 1. nóvember 2022 06:31 KÚNST: Kvennakraftur í kirkjugarði „Ég vildi fá að hafa smá femíniska slagsíðu í þessu,“ segir listamaðurinn Þrándur Þórarinsson um verk sem hann málaði af Þorbjörgu Sveinsdóttur, ljósmóður og kvenréttindabaráttukonu, og Guðrúnu Oddsdóttur, fyrstu manneskjunni sem var jörðuð í Hólavallagarði. Þrándur er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst. 23. október 2022 11:01 Fossar og furðuverk sameinast í sendiráðinu Listamaðurinn Jón Sæmundur stendur fyrir málverkasýningunni Fossar og Furðuverur í íslenska sendiráðinu í Bretlandi um þessar mundir. Á sýningunni blandar Jón saman seríum sem hann hefur verið að vinna að undanfarið en viðfangsefnið er fossar og önnur furðuverk, sem hafa lengi verið Jóni hugleikin. Blaðamaður heyrði í Jóni og fékk nánari innsýn í innblástur hans. 17. maí 2022 15:31 Mest lesið Að velja rangan maka: „Við gerum oft svo lítið úr ástarmálunum“ Áskorun Landaði hlutverki í íslensku Hallmark-myndinni á hálftíma Bíó og sjónvarp Lively í hart: „Þú veist að við getum grafið hvern sem er“ Bíó og sjónvarp „Ég var alltaf systir bræðranna sem dóu, dóttir bæjarstjórans eða dóttir ráðherrans“ Áskorun Frægir fjölguðu sér árið 2024 Lífið Garðar málari og kvæntur yngstu ömmu landsins Lífið Krakkatían: Jólasveinar, stjörnustríð og þjóðsögur Lífið Fékk Sigurbjörn Árna til að lýsa óhappi í vinnunni Lífið Blaðasnápurinn Stefán Einar fórnar kampavínskóngstitlinum Lífið Innlit á æfingu Jólagesta: „Allt þarf að taka endi“ Tónlist Fleiri fréttir Jói Pé og Króli skrifa söngleik Féll í myndlist en fann sig sem myndlistarmaður Bestu vinkonur sameinast í listinni Bjarni og Sigurður verði ekki myrtir í bók Borgarleikhúsið setur upp Moulin Rouge 250 sýningar af Elly: „Án hennar væri Íslandssagan öðruvísi“ Heitustu stjörnur listarinnar saman í Ásmundarsal Snorri skein skært í hátíðarbrókinni Engin sé uppskeran ef kartöflurnar eru ekki settar niður Verður ýmist í leyfi eða hlutastarfi á listamannalaunum Þessi fá listamannalaun 2025 Gleðilegir gestir í hátíðarskapi á safninu „Spurning um að fara að sækja réttu kokteilboðin“ Geir og Arnaldur í fangbrögðum á toppnum Í beinni: Dagur íslenskrar tónlistar Reykjavík samdi til þriggja ára við Borgarleikhúsið Bróðir Díönu Prinsessu naut sín í Reykjavík Leikstjóri Forrest Gump mættur til Reykjavíkur 52 ár á milli þeirra og þrjár bækur Ballettdansarinn Vladimir Shklyarov látinn Einar og Sigga á Grund gerð að heiðurslistamönnum Skaðlegt geðheilsunni að reyna að geðjast öðrum Leikfélag Hafnarfjarðar lagt niður Víkingur Heiðar tilnefndur til Grammy-verðlauna Frambjóðendur, sjónvarpsstjörnur og gamlir félagar fögnuðu með Geir Setja upp árekstur og hefja saman rekstur „Þetta eru mjög vondir samningar við Storytel“ Varpa ljósi á mikilvægi og gæði íslenskrar hönnunar „Við þurfum öll að halda í barnið innra með okkur“ Menningarritstjóri ráðinn framkvæmdastjóri Sjá meira
„Listin er speglun á mínum innri talandi rafmagnaða helli“ Listin og lífið dansa saman skemmtilegan dans og sumir halda því fram að listina sé að finna allt í kringum okkur. 22. desember 2021 11:30
Baggalútur afhjúpar samstarf við frægan erlendan listamann Ástsæla og sívinsæla sveitin Baggalútur var að senda frá sér myndband af áhugaverðum blaðamannafundi þeirra. Ástæðan er komandi jólatónleikatörn sveitarinnar og samstarf við tékkneska listamanninn og hönnuðinn Krištof Kintera.. 10. nóvember 2022 12:04
Reynir að gera köngulærnar eins girnilegar og hægt er Listakonan Helena Margrét fann fyrir keppnisskapi í listinni á sínum yngri árum en hún stendur nú fyrir einkasýningu í Ásmundarsal og tekur þátt í sýningum víða um heiminn á næstunni. Blaðamaður heyrði í henni og fékk að heyra nánar frá listinni og lífinu. 9. nóvember 2022 14:31
Ást og friður birtist sem dúfur sem róta í rusli „Ég var nú mjög snemma búin að ákveða að listin væri það sem ég vildi leggja fyrir mig, enda var ég alltaf að teikna og búa eitthvað til þegar ég var barn,“ segir listakonan Auður Lóa Guðnadóttir en hún var að opna sýninguna Be Mine í Gallerí Þulu. 8. nóvember 2022 17:00
Skemmtilegt þegar fólk fær að gera eitthvað meira en bara að horfa Þórdís Erla Zoega hefur átt viðburðaríkt ár þar sem hún var meðal annars valin bæjarlistarmaður Seltjarnarnesbæjar, setti upp sýningu í Kaupmannahöfn og opnaði einkasýninguna Spaced Out í Berg Contemporary. Þórdís Erla er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst. 1. nóvember 2022 06:31
KÚNST: Kvennakraftur í kirkjugarði „Ég vildi fá að hafa smá femíniska slagsíðu í þessu,“ segir listamaðurinn Þrándur Þórarinsson um verk sem hann málaði af Þorbjörgu Sveinsdóttur, ljósmóður og kvenréttindabaráttukonu, og Guðrúnu Oddsdóttur, fyrstu manneskjunni sem var jörðuð í Hólavallagarði. Þrándur er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst. 23. október 2022 11:01
Fossar og furðuverk sameinast í sendiráðinu Listamaðurinn Jón Sæmundur stendur fyrir málverkasýningunni Fossar og Furðuverur í íslenska sendiráðinu í Bretlandi um þessar mundir. Á sýningunni blandar Jón saman seríum sem hann hefur verið að vinna að undanfarið en viðfangsefnið er fossar og önnur furðuverk, sem hafa lengi verið Jóni hugleikin. Blaðamaður heyrði í Jóni og fékk nánari innsýn í innblástur hans. 17. maí 2022 15:31