Innlent

Lögin ekki vanda­málið heldur fram­kvæmdin

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Arndís Anna segir lögreglu þegar hafa gengið mjög harkalega fram í aðgerðum sínum í vikunni.
Arndís Anna segir lögreglu þegar hafa gengið mjög harkalega fram í aðgerðum sínum í vikunni. Vísir/Arnar

Þingmaður Pírata segir ekkert í Útlendingalögum skikka stjórnvöld til að framkvæma brottflutning með jafn mikilli hörku og gert var í vikunni. Það veki furðu að ríkisstjórnin ýti eftir nýrri útlendingalöggjöf þegar forsætisráðherra telur mikla sátt ríkja um núgildandi lög.

Aðgerð lögreglu fyrr í vikunni, þar sem leit var gerð að 28 hælisleitendum sem vísa átti úr landi, hefur verið harðlega gagnrýnd. Hluti hópsins fannst ekki í aðgerðunum en fimmtán voru sendir með flugvél í gærmorgun til Grikklands. Í þeim hópi var fatlaður maður, líkt og mikið hefur verið fjallað um, en brottflutningur hans hefur vakið sérstaklega mikla reiði.

Breið sátt um útlendingalögin

Forsætisráðherra segir mögulega þurfa að breyta lögunum en um það hafi ekki komið margar tillögur.

„Mér hefur nú heyrst almennt vera mikil samstaða um [lögin] enda voru þau samþykkt í breiðri samstöðu,“ sagði Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra í samtali við fréttastofu að loknum ríkisstjórnarfundi í dag.

Að hennar mati væru það ekki endilega lögin sem væru vandamálið heldur framkvæmdin. Dómsmálaráðherra stefnir á að nýtt útlendingafrumvarp nái fram að ganga í þinginu fyrir jól.

„Það er að ákveðnu leiti skondið að sjá ráðherra ríkisstjórnarinnar tala um þetta núna þar sem þau hafa gengið dálítið hart fram í að koma inn á þingið lagafrumvarpi til að breyta þessum lögum,“ segir Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, þingmaður Pírata.

Harkan í takt við tal ríkisstjórnarinnar

Lögin skikki stjórnvöld ekki til harkalegra aðgerða og því þurfi að breyta framkvæmdinni.

„Lögin skikka sjtórnvöld ekki með neinum hætti til að flytja fólk í þessari stöðu úr landi, eða flytja nokkurn mann til Grikklands, né heldur að koma svona fram við fólk í sérstaklega viðkvæmri stöðu.“

Margt bendi til að endurupptökubeiðnir allra í þessum hópi fólks beri árangur.

„Þetta er ekki eðlilegt á nokkurn hátt en sérstaklega óeðlilegt í þessum málum vegna þess að þau eiga það öll sameiginlegt að hafa verið mjög gagnrýnd. Þessar niðurstöður kærunefndar hafa verið gagnrýndar og eitt dómsmál er þegar unnið þannig að það er svo margt sem bendir til að þessar endurupptökubeiðnir muni bera árangur og að þessi dómsmál muni vinnast.“

Aðgerðir lögreglu fyrr í vikunni séu ekki réttlætanlegar. 

„Þetta er meiri harka en við höfum séð. Harkan er að aukast og er samt svolítið í takt við það hvernig ríkisstjórnin hefur verið að tala.“


Tengdar fréttir

„Mér eru mikil von­brigði að ég skuli búa í svona landi“

„Mér eru mikil vonbrigði að ég skuli búa í svona landi þar sem einhver lög leyfa að svona gjörningar fari fram; að fólk sé vakið upp um miðja nótt, tekið af lögreglunni út í bíl og keyrt upp á flugvöll og flogið til útlanda.“

Fjölmennt á Austurvelli

Nokkuð stór hópur hefur safnast saman til að mótmæla meðferð stjórnvalda á flóttafólki sem var sent úr landi með leiguflugvél til Grikklands í nótt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×