Siðrof Gunnar Dan Wiium skrifar 4. nóvember 2022 09:00 Ég vinn í skóla. Þar er áhersla á heilbrigð samskipti og ofbeldi er að sjálfsögðu ekki liðið. Við gerum eineltisáætlanir, höldum fundi með börnum og foreldrum. Spilling og ofbeldi líðst ekki, núll tolerance. Þetta segjum við börnunum, hvort öðru og við foreldra. Foreldrar eru hvattir til að taka samtalið með börnum sínum og gerum við ekki ráð fyrir að annað sé gert. Á sama tíma og allar þessar kærleiksríku áherslur eru í hávegum hafðar sitja lýðræðiskosnir einstaklingar í skugga brota sinna og skertrar samkenndar. Þeir verða uppvísir á hverju misferlinu á fætur öðru, oft sömu einstaklingarnir en alls ekkert alltaf. Þeir detta í það á vinnutíma og tala um ríða þessari en ekki hinni, gera viðbjóðslegt grín af fötluðum, þeir semja um sölur ríkiseigna á slikk, nátengdir sjávarútvegi skjóta þeir fjármunum þjóðarinnar í vasa örfárra manna, vina sinna. Þessir lýðræðiskosnu einstaklingar skrifa lög sem vísa fólki út í kuldan í fylgd hnífavestisklæddra manna, og við erum að tala um örfáar hræður, sem leikandi væri hægt að finna pláss fyrir á íslenskum atvinnumarkaði. Þessir lýðræðiskosnu einstaklingar eru atvinnuþingfólk, þeir líta ekki svo á að þeir séu að þjóna fjöldanum í tímabundinnni þjónustu heldur líta þeir svo á að líðurinn þjóni þeim og ár eftir ár. Þetta eru smákongar og drottningar sem búa yfir skertri samkennd sem stafar af skakkri vitundarbylgju. Upplýsing þessara einstaklinga er engin, þeir eru keyrðir áfram af akademiskri hugmyndarfræði sem aldrei mun getað rammað inn mannúð og náungakærleik. Allt er í kerfi, þessar fimmtán hræður sem voru sendar með einkaþotu í nótt til fokking Aþenu sem by the way er nice borg ef þú ert túristi en algjört hellhole fyrir flóttafólk. Þessar manneskjur voru sendar því kerfið sagði það, computer says no og skömmin sem fylgir gerir það að verkum að verknaðurinn á sér stað í skjóli nætur og fyrir luktum dyrum. Trekk í trekk er ég minntur á afhverju ég kýs aldrei í svokölluðum lýðræðislegum kosningum. Gott og vel með malbik á göturnar, sorphirðu, flott menntakerfi og hálfkáks heilbrigðiskerfi. Ég mun aldrei setja nafn mitt við kerfi sem kerfisbundið leggur í einelti, beitir ofbeldi, lýgur, svíkur, stelur og misbýður allri samvitund. Ég er ekki að halda því fram að allir þingmenn eða konur séu dúsbags. Ég þekki persónulega nokkra/r slíka/r og get með af fullu hjarta sagt að þau eru að starfa af heilindum en málið er að þau eiga ekki séns, sama hvað þau garga úr pontu eða hvaða viðtöl eru tekin hér og þar í útvörpun og sjónvarpi, sama hvaða greinar og pistla þau skrifa. Þau ná einfaldlega ekki í gegnum um filterinn, fjötra efnisviðjana. Þetta eru bara lög sem er verið að framfylgja sem voru sett árið 2016 segir hún og þar af leiðandi ekki á minni vakt, ekki benda á mig. Þetta eru bara lög sem er verið að framfylgja segir hún,,,,,, auðvitað verður fólk reitt er það verður vitni að valdbeitingu segir hún,,,, ég meina hvar erum við eiginlega, brave new world? Ég er búin að missa alla trú á manninn, ég er búin að draga mig í skel, ég finn það. Það er viss uppgjöf í gangi og hún tengist sorg, ég er sorgmæddur yfir þjáningu heimsins. Samt sem áður sé ég örlög mannsins eru valin og í algjöru samræmi við gefnar forsendur. En vá hvað maður fyllist miklu vonleysi og tilgangsleysi þegar gjáin milli fólksins og þeirra sem eiga að vera að stjórna landinu í umboði fólksins er orðin óbrúarleg. Höfundur starfar sem smíðakennari, þáttarstjórnandi hlaðvarpsins Þvottahúsið og umboðsmaður. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Gunnar Dan Wiium Mest lesið Fögnum á degi líffræðilegrar fjölbreytni Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Skúli Skúlason,Ole Sandberg,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun Glútenlaust gull á grillið Anna Gunndís Guðmundsdóttir Skoðun Heilræði fyrir Nýhaldið Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Skoðun Stundum hefur Gunnar Smári rétt fyrir sér Magnús Árni Skjöld Magnússon Skoðun „Hæ ástin, þarf að millifæra, getur þú samþykkt beiðnina?“ Heiðrún Jónsdóttir Skoðun Evrópa og myrkrið framundan Hilmar Þór Hilmarsson Skoðun Algeng þvæla um Evrópusambandið Jón Frímann Jónsson Skoðun Af hverju að byggja Coda Terminal? Ólafur Elínarson,Sandra Ósk Snæbjörnsdóttir Skoðun Lokunaruppboð í Kauphöllinni Baldur Thorlacius Skoðun ESB fyrir almenning Oddný G. Harðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Stórnotendur eru kjölfestan í íslenska raforkukerfinu Guðríður Eldey Arnardóttir skrifar Skoðun Ert þú í góðu netsambandi? Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir skrifar Skoðun Evrópa og myrkrið framundan Hilmar Þór Hilmarsson skrifar Skoðun Heilræði fyrir Nýhaldið Sigmundur Davíð Gunnlaugsson skrifar Skoðun Glútenlaust gull á grillið Anna Gunndís Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Kaupin á eyrinni Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Lokunaruppboð í Kauphöllinni Baldur Thorlacius skrifar Skoðun Viðreisn mun leggja fram tillögu um íbúakosningu um Coda Terminal verkefnið í Hafnarfirði Jón Ingi Hákonarson skrifar Skoðun Ferðatryggingar og val á kreditkorti Svandís Edda Hólm Jónudóttir skrifar Skoðun Af hverju að byggja Coda Terminal? Ólafur Elínarson,Sandra Ósk Snæbjörnsdóttir skrifar Skoðun Hljóð úr horni Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun ESB fyrir almenning Oddný G. Harðardóttir skrifar Skoðun Strámaðurinn mikli Kristján Hreinsson skrifar Skoðun Árið er 2024 Halla Signý Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Samkeppni í nýju ljósi Páll Hermannsson skrifar Skoðun Það er verið að grafa dýpri fátæktargjá Rúnar Sigurjónsson skrifar Skoðun „Hæ ástin, þarf að millifæra, getur þú samþykkt beiðnina?“ Heiðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Algeng þvæla um Evrópusambandið Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Stundum hefur Gunnar Smári rétt fyrir sér Magnús Árni Skjöld Magnússon skrifar Skoðun Hamingjan grundvallast á gæðum hugsananna Árni Már Jensson skrifar Skoðun Hátt reitt til höggs Hjálmar Jónsson skrifar Skoðun Brennt barn forðast eldinn Hrefna Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Varnir gegn gagnagíslatökum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Uppbygging almannahagsmuna á Íslandi Hlynur Már Vilhjálmsson skrifar Skoðun Málað sig út í horn Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Full orkuskipti ríkisflota og samgönguþjónustu fyrir 2030 Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Einelti er veruleikabrenglun Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun „Lýtalaus íslenska“ er ekki til Eiríkur Rögnvaldsson skrifar Skoðun Hvatning til mótshaldara Landsmóts hestamanna Linda Karen Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Áróður Kremls gegn Úkraínu og NATO Guðni Freyr Öfjörð skrifar Sjá meira
Fögnum á degi líffræðilegrar fjölbreytni Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Skúli Skúlason,Ole Sandberg,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun
Skoðun Viðreisn mun leggja fram tillögu um íbúakosningu um Coda Terminal verkefnið í Hafnarfirði Jón Ingi Hákonarson skrifar
Fögnum á degi líffræðilegrar fjölbreytni Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Skúli Skúlason,Ole Sandberg,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun