Bíó og sjónvarp

Dýrið hlaut kvik­­mynda­verð­­laun Norður­landa­ráðs

Viktor Örn Ásgeirsson skrifar
Myndin hlaut meðal annars tólf verðlaun á Edduverðlaununum í ár.
Myndin hlaut meðal annars tólf verðlaun á Edduverðlaununum í ár. Norðurlandaráð/Magnus Fröderberg

Dýrið hlaut Kvik­mynda­verð­laun Norður­landa­ráðs 2022 sem afhent voru fyrr í kvöld. Verðlaunin eru talin ein eftirsóttustu kvikmyndaverðlaun í Evrópu. 

Dómnefnd segir myndina endurspegla hið hina hefðbundnu sveitasælu og íslenskar þjóðsögur á einstakan hátt. Leikstjóranum hafi vel tekist til að láta þessa tvo ólíku heima vinna saman og skapað með því undraverða sögu blandaða hryllingi, missi og ótta. Ofurnæmni dýra fyrir umhverfinu hafi verið nýtt til að skapa spennu áhorfenda og hljóðheimurinn hafi verið magnþrunginn.

Valdimar Jóhannsson leikstýrði myndinni og handritið skrifaði hann í samvinnu við Sjón. Myndin er framleidd af Hrönn Kristinsdóttur og Sara Nassim fyrir Go to Sheep, í samvinnu við sænska og pólska framleiðendur.

Sex milljónir í verðlaunafé

Verðlaununum fylgir verðlaunafé sem nemur tæpum sex milljónum íslenskra króna, og skipta handritshöfundur, leikstjóri og framleiðandi upphæðinni á milli sín, enda kvikmyndagerð sem listgrein afurð náins samstarfs margra, eins og fram kemur í fréttatilkynningu.

Dýrið segir frá sauðfjárbændunum Maríu og Ingvari sem búa í fögrum en afskekktum dal. Þegar dularfull vera fæðist á bóndabænum ákveða þau að halda henni og ala upp sem sitt eigið afkvæmi. Vonin um nýja fjölskyldu færir þeim mikla hamingju um stund, hamingju sem verður þeim síðar að tortímingu.

Með aðalhlutverk fer sænska leikkonan Noomi Rapace, en hún bjó á Íslandi sem barn og er þetta fyrsta aðalhlutverk hennar á íslensku. Auk Noomi fara þeir Hilmir Snær Guðnason, Björn Hlynur Haraldsson og Ingvar E. Sigurðsson með aðalhlutverk í myndinni. Stjórn kvikmyndatöku er í höndum Eli Arenson og Agnieszka Glińska sér um klippingu myndarinnar. Þórarinn Guðnason samdi tónlist myndarinnar og hljóðhönnun er í höndum Ingvars Lundberg og Björns Viktorssonar.


Tengdar fréttir

Dýrið sankaði að sér verðlaunum

Það er óhætt að segja að kvikmyndin Dýrið í leikstjórn Valdimars Jóhannssonar hafi verið sigurvegari kvöldsins á Edduverðlaununum þetta árið en myndin hlaut alls 12 verðlaun. Þar á meðal hlaut myndin verðlaun fyrir handrit og leikstjórn ársins en myndin var einnig valin kvikmynd ársins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.