Innlent

Enginn hrekkja­vöku­hakkari á ferð

Bjarki Sigurðsson skrifar
Seinna í dag kemur í ljós hvaða fyrirtæki ber ábyrgð á skiltunum.
Seinna í dag kemur í ljós hvaða fyrirtæki ber ábyrgð á skiltunum. Vísir/Vilhelm

Tölvuþrjótar bera ekki ábyrgð á óskýrum skilaboðum á auglýsingaskiltum borgarinnar. Einungis er um að ræða auglýsingaherferð sem verður útskýrð betur seinna í dag.

Vésteinn Gauti Hauksson, framkvæmdastjóri Billboard, staðfestir þetta í samtali við fréttastofu. Hann vildi ekki gefa upp hvaða fyrirtæki væri að auglýsa.

Fjölmiðlar höfðu margir hverjir velt málinu fyrir sér í morgun. Því var slegið upp að mögulega væri um listagjörning að ræða eða að tölvuþrjótar hafi tekið yfir skiltin í tilefni af hrekkjavöku sem haldin er hátíðleg í dag. 

Seinna í dag kemur í ljós hvaða fyrirtæki er að auglýsa á skiltunum. 

Það er ekki tölvuþrjótur sem ber ábyrgð á þessu verki.Vísir/Vilhelm



Fleiri fréttir

Sjá meira


×