Skoðun

Flestir eru þakk­látir fyrir fjöl­skylduna

Unnur Arna Jónsdóttir, Hrafnhildur Sigurðardóttir og Ingrid Kuhlman skrifa

Nú um helgina stóðum við fyrir vitundarvakningu um vellíðan barna hjá Eymundsson í Smáralind og á Akureyri til að vekja athygli foreldra á því hversu mikil áhrif snjalltækjanotkun hefur á líðan barna. Við hvöttum foreldra til að taka þátt og setja bæði sjálfum sér og börnum sínum mörk þegar kemur að snjalltækjanotkun. Við fengum frábærar móttökur bæði hjá foreldrum og börnum þegar við kynntum fyrir þeim þær fjölmörgu æfingar sem hægt er að nota til að draga úr snjalltækjanotkun, fjölga gæðastundum, efla sjálfsmyndina, auðvelda val á viðhorfi, sýna sér aukið sjálfsmildi og auka þakklæti.

Gleðilisti fjölskyldunnar

Gleðilistinn er frábær leið til að skapa skemmtilegar gæða- og samverustundir og góðar minningar. Setjið niður á blað hugmyndir sem allir fjölskyldumeðlimir eru sammála um að skapi með þeim gleði og ánægju. Gleðilista fjölskyldunnar er gott að hafa á áberandi stað og nota reglulega.

Bros- og fýlukarl

Við veljum viðhorf okkar á hverjum degi, oft á dag, til hinna ólíku verkefna sem lífið færir okkur. Einfalt er að útbúa bros- og fýlukarl með barninu til að minna það á valið sem það stendur frammi fyrir alla daga, val um jákvætt eða neikvætt viðhorf.

Styrkleikalisti

Styrkleikalisti er frábært mótvægi við tölvu- og snjalltækjanotkun. Ef barnið fær til dæmis 30-60 mínútur í tölvu- eða snjalltæki þá notar það sömu tímalengd til að fjárfesta í sjálfu sér. Það velur einn af styrkleikum sínum (sem ekki tengjast tölvu- eða snjalltækjanotkun) og þjálfar sig betur í honum.

Öryggisknús

Það er vísindalega sannað að gott er að gefa bæði sjálfum sér og öðrum faðmlag. Faðmlag hefur örvandi áhrif á taugakerfið og leysir úr læðingi hormónið oxýtósín en það eykur vellíðan. Heilinn skynjar ekki mun á því hvort faðmlagið sé frá okkur sjálfum eða öðrum. Áhrifin eru þau sömu.

Þakklætisveggur

Þakklætisvöðvann ber að þjálfa eins og aðra vöðva. Þegar við þökkum fyrir það góða í lífinu dafnar það jákvæða innra með okkur. Þakklætisveggurinn vakti mikla athygli og kepptust bæði börn og fullorðnir við skrifa þakkir sínar. Það var ánægjulegt að sjá að flestir þökkuðu fyrir fjölskyldu sína.

Við hvetjum alla til að njóta samverunnar með fjölskyldunni án snjalltækja og vera til staðar.

Unnur Arna Jónsdóttir og Hrafnhildur Sigurðardóttir eru eigendur Hugarfrelsis og Ingrid Kuhlman er leiðbeinandi og ráðgjafi hjá Þekkingarmiðlun. Saman eru þær höfundar bókarinnar Vellíðan barna: Handbók fyrir foreldra og standa að átakinu Vitundarvakning um vellíðan barna.




Skoðun

Skoðun

Þöggun

Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir,Margrét Kristín Blöndal,Margrét Rut Eddudóttir,Lukka Sigurðardóttir,Sigtryggur Ari Jóhannsson,Halldóra Jóhanna Hafsteins Âû skrifar

Sjá meira


×