Bíó og sjónvarp

Cavill kveður Geralt af Riviu

Ellen Geirsdóttir Håkansson skrifar
Henry Cavill kveður Geralt og Liam Hemsworth tekur við.
Henry Cavill kveður Geralt og Liam Hemsworth tekur við. Getty/Juan Naharro Gimenez, Taylor Hill

Leikarinn Henry Cavill hefur sagt skilið við hlutvek sitt í Netflix þáttunum „The Witcher“ og kemur Liam Hemsworth í hans stað.

Þættirnir , sem hófu göngu sína árið 2019, hafa notið mikilla vinsælda á Netflix en þrjár seríur hafa verið gerðar af þáttunum og nú er sú fjórða á leiðinni.

Leikararnir birtu báðir tilkynningu um breytinguna á Instagram reikningum sínum fyrr í kvöld en hlutverkið sem um ræðir er skrímslaveiðarinn Geralt af Riviu. Cavill segist hlakka til að sjá Hemsworth taka við keflinu og leika „einn mest heillandi og fjölbreytta mann“ sem til sé.

Hemsworth segist himinlifandi yfir því að fá tækifæri til þess að leika Geralt og hrósar hann Cavill fyrir sína túlkun á hlutverkinu.

Af athugasemdum við Instagram tilkynningar leikarana að dæma má sjá að margir eru verulega óánægðir með breytinguna. Sumir virðast vona að um einhverskonar brandara sé að ræða og spyr einn aðdáandi hvort Ástralar haldi upp á fyrsta apríl í október en Hemsworth er ástralskur.

Engin ástæða virðist gefin fyrir leikaraskiptunum en greinilegt er að Cavill er vinsæll hjá Hollywood um þessar mundir. Leikarinn staðfesti endurkomu sína í hlutverk Superman á dögunum og leikur einkaspæjarann Sherlock Holmes í nýrri kvikmynd um Enolu Holmes ásamt „Stanger things“ leikkonunni Millie Bobby Brown. Sú kvikmynd er væntanleg á Netflix þann 4. nóvember næstkomandi.

Hér að neðan má sjá stiklu fyrir þriðju seríu Witcher þáttana. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.