Innlent

Grind­horaðar kýr sagðar í um­­­sjá sama fólks og hestarnir í Borgar­­firði

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Dýraverndunarsinnar segja nautgripina ekki hafa góðan aðgang að vatni og fóðri.
Dýraverndunarsinnar segja nautgripina ekki hafa góðan aðgang að vatni og fóðri. Steinunn Árnadóttir

Formaður Dýraverndarsambands Íslands segir Matvælastofnun ekki sinna eftirliti þegar grunur er um dýraníð sem skyldi. Nýjar upplýsingar bendi til að vannærðum nautgripum hafi verið haldið innandyra í rúm þrjú ár af sama fólki og grunaðir er um illa meðferð á hrossum í Borgarfirði.

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur kallað eftir upplýsingum frá Matvælastofnun um framkvæmd eftirlits hennar og verkferla vegna velferðar dýra. MAST hefur verið harðlega gagnrýnd undanfarið vegna eftirlits, eða skorts þar á.

„Þegar ég sé að það er verið að ganga mögulega á svig við þessa löggjöf spyr ég mína eftirlitsstofnun hvernig eftirlitinu sé háttað. Og ekki síst hvernig upplýsingamiðlun til almennings sé háttað á meðan verið er að sinna eftirlitinu,“ sagði Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra í samtali við fréttastofu að loknum ríkisstjórnarfundi í dag. 

Í haust kom upp mál er varðar vanrækslu hrossa í Borgarfirði en í síðustu viku voru þrettán þeirra aflífuð vegna alvarlegs ástands. Nú hafa íbúar í Borgarbyggð vakið athygli á nautgripum, sem eru í umsjá sömu aðila samkvæmt heimildum fréttastofu og hafa verið innandyra undanfarin þrjú ár.

„Nú er búið að setja þau út en þau eru grindhoruð þessi dýr og eru með takmarkaðan aðgang að vatni og fóðri, sem er algjörlega óviðunandi,“ segir Linda Karen Gunnarsdóttir, formaður Dýraverndarsambands Íslands. 

Nautin eru sjáanlega mjög grönn.Steinunn Árnadóttir

MAST þurfi að nýta betur þau úrræði sem henni standi til boða, eins og að skipa tilsjónarmann með dýrum sem áhyggjur eru af.

„Það kemur okkur á óvart að það hafi ekki verið gert. Dýrin eru látin vera áfram hjá þeim aðila sem hefur verið að brjóta á þeim,“ segir Linda. 

Grípa þurfi til tafarlausra aðgerða í Borgarbyggð.

„Og að þessum dýrum verði forðað og þeim veitt örugg umsjón þar sem velferð þeirra og heilsa verður tryggð.“


Tengdar fréttir

Svandís segir Íslendinga geta gert betur í dýravelferð

Matvælaráðherra segir ástæðu til að ætla að Íslendingar geti gert betur í dýravelferð. Hún hefur kallað eftir svörum frá Matvælastofnun um framkvæmd eftirlits og verkferla í dýravelferðarmálum.

Hin hrossin send aftur til eig­enda

Þrettán hross í Borgarfirði voru aflífuð af Matvælastofnun (MAST) í gær vegna alvarlegs ástands. Önnur hross reyndust vera í ásættanlegum holdum og var skilað til umráðamanns. Tíu þeirra eru þó sögð vera í viðkvæmu ástandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×