Bankarnir hafa fimmfaldað útlán sín til fyrirtækja milli ára
![Útlánavöxturinn í síðasta mánuði var einkum til fyrirtækja í iðnaði en auk þess var nokkur aukning í lánum til félaga sem starfa í byggingarstarfsemi, verslun og þjónustu.](https://www.visir.is/i/6B2A11CF459ABD877AE5B77F02CA41A1B69106E764CF6DF29A15644AC641D7A9_713x0.jpg)
Eftir vísbendingar um að það væri farið að hægja á miklum útlánavexti viðskiptabankanna til atvinnufyrirtækja í ágúst þá sýna nýjar tölur Seðlabankans að hann tók við sér kröftuglega á ný í liðnum mánuði. Á fyrstu þremur fjórðungum þessa árs þá nema ný útlán bankanna til fyrirtækja samtals um 213 milljörðum króna borið saman við aðeins 44 milljarða á sama tímabili fyrir ári.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/BB38B2397AE8922CD06A10A7F1B7AB16311E55A440A45AC13A366E7BC069E511_308x200.jpg)
Innlán fyrirtækja bólgnað út um nærri 50 prósent á rúmlega einu ári
Ekkert lát er á miklum vexti í innlánum atvinnufyrirtækja en frá því um vorið 2021 hafa þau aukist að umfangi í bankakerfinu um nærri fimmtíu prósent. Á sama tíma hefur verið afar lítil aukning í innlánum heimilanna sem hafa skroppið saman að raunvirði á síðustu mánuðum og misserum.
![](https://www.visir.is/i/3C66A027B86F7D24D9989350DBA90B0632179818CA3735F02B42CC2F47708BED_308x200.jpg)
Seðlabankinn ofmat umfang útlána til fyrirtækja um 150 milljarða
Umfang fyrirtækjalána í fjármálakerfinu jókst um rúmlega 87 milljarða króna á öðrum ársfjórðungi, samkvæmt leiðréttum tölum frá Seðlabanka Íslands. Þrátt fyrir að aukningin sé sú mesta sem sést hefur á milli fjórðunga frá því í árslok 2016 þá er hún aðeins tæplega þriðjungur af því sem fyrri tölur bankans höfðu sýnt.