Viðskipti innlent

Hættir sem ferða­mála­stjóri: „Langar til að klára starfs­ævina í ferða­þjónustu­rekstri“

Atli Ísleifsson skrifar
Skarphéðinn Berg Steinarsson.
Skarphéðinn Berg Steinarsson. Vísir/Egill

Skarphéðinn Berg Steinarsson ferðamálastjóri hefur ákveðið að láta af störfum sem ferðamálastjóri um áramót. Hann tilkynnti starfsfólki Ferðamálastofu um ákvörðun sína á starfsmannafundi í morgun.

Fimm ára skipunartímabil Skarphéðins rennur út um áramót og segir hann að það sé mönnum á slíkum tímamótum hollt að finna út úr því hvað þeir ætli að gera. 

„Mér stóð til boða að halda áfram þannig að valið var mitt. Ég komst að þeirri niðurstöðu að mig langar til að snúa aftur í ferðaþjónustuna. Það er svo einfalt.“

Skarphéðinn segist ekki hafa ákveðið hvað hann ætli að gera innan ferðaþjónustunnar. „Næg eru tækifærin! Þetta er atvinnugrein í bullandi uppgangi. Ég er vissu um að ég finni eitthvað þar. En það er ekki viðeigandi að leita að vinnu á meðan ég klára starfið hér hjá Ferðamálastofu. Kannski að einhver hafi samband, kannski að ég byggi aftur eitthvað frá grunni. Það verður bara að ráðast. En mig langar til að klára starfsævina í ferðaþjónusturekstri,“ segir Skarphéðinn, sem verður sextugur á næsta ári.

Tilkynnti ráðherra um ákvörðunina

Skarphéðinn segir að hann hafi nýverið átt fund með Lilju Alfreðsdóttur, ráðherra ferðamála, þar sem hann tilkynnti um ákvörðun sína.

Hann segir að síðustu fimm árum hafi mjög mikið breyst í ferðaþjónustu og sömuleiðis hafi tíminn verið mjög viðburðarríkur. 

„Fyrstu tvö árin sem ég gegndi þessu embætti þá var rosalegur uppgangur í ferðaþjónustunni. Svo kom Covid og allar þær áskoarnir sem því fylgdi. Síðasta árið hefur ferðaþjónustan verið að ná vopnum sínum og það virðist vera að takast vel. Það er bjart framundan. Þá finnst mér það vera ágætis tími fyrir mig persónulega og örugglega stofnunina líka að gera þetta með þessum hætti,“ segir Skarphéðinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×