Innlent

Til skoðunar að taka í notkun breiðvirkara bólu­efni gegn HPV

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Gardasil verndar gegn fleiri tegundum HPV en Cervarix.
Gardasil verndar gegn fleiri tegundum HPV en Cervarix.

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra segir þörf á því að skipta um bóluefni gegn HPV-veirunni hér á landi en hingað til hefur bóluefnið Cervarix verið boðið stúlkum við 12 ára aldur.

Það ver gegn tveimur tegundum HPV-veirunnar og veitir um 70 prósenta vörn en hins vegar er annað bóluefni í boði erlendis, Gardasil, sem ver gegn níu tegundum HPV og veitir um 90 prósenta vörn.

HPV-veiran á þátt í myndun leghálskrabbameins og er til staðar hjá langflestum þeirra sem greinast með sjúkdóminn eða forstigsbreytingar hans. Ástæða þess að Cervarix var valið fram yfir Gardasil í síðasta útboði var kostnaður.

Maríanna Hallgrímsdóttir, hjúkrunarfræðingur og þriggja barna móðir, segir í samtali við Fréttablaðið að það sé miður að á Íslandi sé stúlkum ekki boðið upp á besta mögulega kostinn. Hún afþakkaði Cervarix fyrir dætur sínar og hafði samband við heimilislækni fjölskyldunnar sem pantaði Gardasil.

„Við konur þekkjum allar konur sem hafa fengið frumubreytingar og margar sem hafa farið í keiluskurð. Ef við getum komið í veg fyrir þetta líkt og er gert með aðrar veirutegundir, af hverju þá ekki?“

Kamilla Sigríður Jósefsdóttir, yfirlæknir bólusetninga, játar því að kvensjúkdómalæknar hafi sett sig í samband við landlæknisembættið vegna málsins. Það verði farið í útboð á næstu mánuðum og þá muni koma í ljós hvaða bóluefni verður á boðstólnum frá haustinu 2023.

Fréttablaðið hefur eftir heilbrigðisráðherra að þörf sé á að breyta um bóluefni. Málið hafi verið til skoðunar hjá sóttvarnalæknir og niðurstöður fari að liggja fyrir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×