Þorbjörg og Þórður til Fossa Atli Ísleifsson skrifar 12. október 2022 12:37 Þórður Ágúst Hlynsson og Þorbjörg M. Einarsdóttir. Aðsend Þórður Ágúst Hlynsson hefur verið ráðinn til starfa sem verkefnastjóri í fyrirtækjaráðgjöf Fossa fjárfestingabanka og Þorbjörg M. Einarsdóttir sem sérfræðingur á nýju fjármálasviði bankans.
Í tilkynningu kemur fram að bæði búi þau yfir yfirgripsmikilli reynslu af störfum á fjármálamarkaði. „Þórður Ágúst býr að yfir 20 ára starfsreynslu sem fjármálastjóri, framkvæmdastjóri og ráðgjafi í fyrirtækjaráðgjöf. Hann kemur til Fossa frá Festi fasteignaþróunarfélagi þar sem hann var fjármálastjóri. Árin 2017 til 2018 var hann framkvæmdastjóri fyrirtækjaráðgjafar GAMMA en þar á undan, 2012 til 2016, var hann framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Icelandic Group. Árin 2006 til 2012 vann Þórður í London, meðal annars hjá Landsbanka Securities Limited, Pensum Partners Limited sem ráðgjafi og eigandi og að lokum hjá G.A. Wedderburn & Co Limited sem framkvæmdastjóri. Þórður er viðskiptafræðingur frá Háskólanum í Reykjavík og hefur lokið M.Sc. gráðu í fjármálum frá Cass Business School í London. Auk þess hefur Þórður lokið námi í verðbréfaviðskiptum og FCA prófi í fyrirtækjaráðgjöf í Bretlandi. Þorbjörg Matthildur kemur til Fossa frá Icelandair. Hún hefur mikla reynslu af störfum við fjárhagsbókhald- og eftirlit. Þorbjörg starfaði sem Financial Control Manager hjá Icelandair frá 2020 og þar áður sem þjónustustjóri hjá Fjárvakri, dótturfyrirtæki Icelandair Group. Áður starfaði Þorbjörg hjá N1 2008 til 2016, lengst af sem deildarstjóri reikningshalds á fjármálasviði. 1999 til 2008 vann Þorbjörg á fjármálasviði Skýrr og tók þar við sem hópstjóri bókhalds 2005. Þorbjörg er með B.Sc. gráðu í viðskiptafræði og B.A. gráðu í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands,“ segir um ráðningarnar. Fossar voru stofnaðir árið 2015 og þjónusta innlenda og erlenda fjárfesta á sviði markaðsviðskipta, fyrirtækjaráðgjafar og eignastýringar.
Vistaskipti Mest lesið „Allir alltaf að segja að hann sé svo mjúkur“ Atvinnulíf Atvinnumissir: „Það var rosa skrýtið að lenda í þessu“ Atvinnulíf „Frekar kvöldsvæfur heldur en morgunfúll“ Atvinnulíf Vaxtalækkun hænuskref í rétta átt en ekki megi gleyma nýlegum hækkunum Neytendur Samþykktu allt að 45 prósent toll á kínverska rafbíla Viðskipti erlent Samið um lok umfangsmikils verkfalls hafnarverkamanna Viðskipti erlent Auglýsingastofurnar finna fyrir samdrætti Viðskipti innlent Misbauð meðferð á hundunum og mátti hætta á námskeiði Neytendur Þótti baðherbergið ógeðslegt og fór frá Íslandi Neytendur Bogi og Linda kaupa af Heimum fyrir milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Auglýsingastofurnar finna fyrir samdrætti Bankarnir verði að lækka vexti jafnhratt og þeir hækkuðu Landsbankinn rekur lestina og lækkar vexti Loks opnað fyrir umsóknir um hlutdeildarlán Bogi og Linda kaupa af Heimum fyrir milljarða Borgin fær milljarða fyrir síðasta þéttingarreit miðborgarinnar Bein útsending: Viðtöl við sérfræðinga um mannauðsmál Uppreisnarleiðtogi snýr heim og tekur við rekstri Hríseyjarbúðarinnar Sýna áhuga á eignum Skagans 3X Indó lækkar líka vexti Íslandsbanki bregst sömuleiðis við stýrivaxtalækkuninni Arion fyrstur til að tilkynna lækkun Engar hópuppsagnir í september Rekstur Rammagerðarinnar gaf vel í fyrra Mikilvægt að íslenskan sé hluti af hverri tæknibyltinguu Gerir óþægilegt samtal auðveldara Þessir sprotar taka þátt í Startup SuperNova í ár Skiltið skuli fjarlægt „Við erum ekki komin á húrrandi ferð niður Esjuna“ Anna Fríða snýr sér að sælgætinu Vaxtahækkun bankanna vó þungt í ákvörðun Ásgeirs Culiacan lokað á Suðurlandsbraut Efla fjármálin með Elfu Herferð í boði Ernu Hreins og Önnu Margrétar Hvíta húsið og Ennemm segja upp fólki Telur ljóst að vaxtalækkunarferlið sé hafið Eirberg hættir með verslunina í Kringlunni í kjölfar brunans Bein útsending: Ásgeir og Rannveig rökstyðja lækkunina Lækkar stýrivextina í fyrsta sinn síðan í árslok 2020 Ekki útilokað að stýrivextir lækki Sjá meira