Fótbolti

Keflavík skiptir um þjálfara

Hjörvar Ólafsson skrifar
Gunnar Magnús Jónsson hefur stýrt Keflavík í sex ár. 
Gunnar Magnús Jónsson hefur stýrt Keflavík í sex ár.  Vísir/Atli Arason

Knattspyrnudeild Keflavíkur hefur ákveðið að framlengja ekki samning sinn við Gunnar Magnús Jónsson, þjálfara kvennaliðs félagsins.

Gunnar Magnús hefur verið við stjórnvölinn hjá Keflavíkurliðinu frá því árið 2016. Undir stjórn Gunnars Magnúsar komst Keflavík upp í efstu deild haustið 2020 og hefur haldið sæti sínu þar síðastliðin tvö keppnistímabil. 

Keflavík hafnaði í áttunda sæti Bestu deildarinnar á nýlokinni leiktíð en liðinu var spáð falli síðastliðið vor. 

„Gunnar hefur náð eftirtektarverðum árangri með liðið síðustu ár og eru honum færðar bestu þakkir deildarinnar fyrir vel unnin störf." segir í tilkynningu Keflavíkur um starfslok þjálfarans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×