Innlent

Telur að Ólafur hafi þegið ofgreidd laun í góðri trú

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Í bréfi sem fjármála- og efnahagsráðuneytið sendi Úrvinnslusjóði í lok ágúst segist ráðuneytið telja að Ólafur Kjartansson, framkvæmdastjóri Úrvinnslusjóðs, hefði ekki þegið hinar ofgreiddu þóknanir í góðri trú.
Í bréfi sem fjármála- og efnahagsráðuneytið sendi Úrvinnslusjóði í lok ágúst segist ráðuneytið telja að Ólafur Kjartansson, framkvæmdastjóri Úrvinnslusjóðs, hefði ekki þegið hinar ofgreiddu þóknanir í góðri trú.

Hæstaréttarlögmaður telur að framkvæmdastjóri Úrvinnslusjóðs hafi verið í góðri trú þegar hann þáði mánaðarlega þóknun í sjö ár fyrir störf í stýrinefnd sem lögð hafði verið niður. Þá sé það langsótt að varpa ábyrgð á mistökum Fjársýslu ríkisins yfir á stjórn og framkvæmdastjóra.

Í bréfi sem fjármála- og efnahagsráðuneytið sendi Úrvinnslusjóði í lok ágúst segist ráðuneytið telja að Ólafur Kjartansson, framkvæmdastjóri Úrvinnslusjóðs, hefði ekki þegið hinar ofgreiddu þóknanir í góðri trú.

Forsaga málsins er sú að árið 2012 ákvað stjórn Úrvinnslusjóðs, með bréfi til fjársýslu ríkisins, að veita framkvæmdastjóranum sérstaka mánaðarlega þóknun fyrir störf hans sem framkvæmdastjóra Stýrinefndar um raf- og rafeindatækjaúrgang.

Með breytingum á lögum um úrvinnslugjald árið 2015 er umrædd stýrinefnd lögð niður og verkefni hennar felld undir verksvið Úrvinnslusjóðs. Kjararáð ákvað laun og starfskjör Ólafs frá og með ársbyrjun 2015 skv. Launatöflu kjararáðs nr. 502, launaflokki 3133 og að auki átti að greiða honum 25 einingar á mánuði fyrir alla yfirvinnu sem starfinu fylgdi. Ólafur skyldi ekki fá frekari greiðslur nema kjararáð myndi sérstaklega úrskurða um það.

Þrátt fyrir ákvörðun kjararáðs urðu þau mistök hjá Fjársýslunni að umrædd þóknun, sem hófst 2012, var ekki felld niður og var hún greidd út mánaðarlega síðustu sjö ár.

Stjórn Úrvinnslusjóðs óskaði eftir áliti hjá Láru V. Júlíusdóttur hæstaréttarlögmanni og sérfræðingi í vinnurétti um ábyrgð stjórnar og framkvæmdastjóra í málinu. Stjórnin sendi álitið í fréttatilkynningu nú fyrir hádegi. Lára segir í áliti sínu að hún telji langsótt að varpa ábyrgð á mistökum Fjársýslu ríkisins yfir á stjórn og framkvæmdastjóra.

Hún segir fullyrðingu ráðuneytisins um að hvorki stjórn né framkvæmdastjóri hafi upplýst ráðuneytið um þessa ofgreiðslu vera ranga. Ólafur hefði í tölvupósti sumarið 2015 upplýst Fjársýslu ríkisins um hverjir hefðu notið greiðslu fyrir setu í stýrinefndinni sálugu. Lára telur að Ólafur hafi verið í góðri trú um að hann væri að fá þau heildarlaun sem honum bæru og að hann hefði treyst því að Fjársýslan gæti annast launaútreikninga og fylgt ákvörðunum kjararáðs. „Til þess ber einnig að líta að hann fékk þessa greiðslu athugasemdalaust í rúm 7 ár,“ segir í áliti Láru.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×