Margrét hættir hjá Ölgerðinni Atli Ísleifsson skrifar 7. september 2022 07:48 Margrét Arnardóttir hóf störf hjá Ölgerðinni árið 2016. Vísir/Vilhelm Margrét Arnardóttir hefur óskað að láta af störfum sem framkvæmdastjóri framleiðslu- og tæknisviðs Ölgerðarinnar og samið um starfslok sín.
Frá þessu segir í tilkynningu frá Ölgerðinni til Kauphallar. Segir að Margrét hafi stýrt sviðinu frá árinu 2016 og mörgum stærstu verkefnum fyrirtækisins síðustu ár, nú síðast umfangsmiklum fjárfestingum í húsnæði og vélbúnaði sem stórauki framleiðslugetu fyrirtækisins. Áður en Margrét hóf störf hjá Ölgerðinni árið 2016 starfaði hún hjá Landsvirkjun um nokkurra ára skeið. Haft er eftir Margréti að tími mikilla umbreytinga sé að baki og Ölgerðin sé nú allt önnur og öflugri en áður. „Við höfum breytt verklagi og framleiðsluferlum, uppfært og innleitt ný kerfi, aukið öryggi starfsfólks í framleiðslu, sett upp nýjar vélar og byggt frá grunni einhvern fjölhæfasta framleiðslusal í heimi. Við höfum stóraukið framleiðsluna, gert margvíslegar tilraunir með nýjar vörur, aukið gæðin og unnið til fjölmargra verðlauna. Við höfum bætt vinnuaðstöðu og aðbúnað starfsfólks, sem myndar sterka liðsheild á þessum frábæra vinnustað. Ég er þakklát mínu góða samstarfsfólki fyrir undanfarin ár, en fyrir mig er tímabært að snúa mér að nýju verkefni – nú þegar Ölgerðin er reiðubúin að mæta framtíðinni,“ segir Margrét. Þá segir Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar, að Margrét hafi lyft grettistaki í þeim fjölmörgu verkefnum sem hún hafi leitt og stýrt innan Ölgerðarinnar síðustu ár. „[V]ið erum þakklát fyrir þau góðu verk sem hún hefur skilað innan fyrirtækisins. Kraftur, áhugi og elja hafa einkennt störf hennar og hún skilar góðu búi til eftirmanns síns. Henni fylgja okkar bestu óskir í hverju sem hún tekur sér fyrir hendur í framtíðinni,“ segir Andri Þór.
Vistaskipti Kauphöllin Ölgerðin Mest lesið Selja fyrsta bjórinn ekki fyrr en í ágúst Viðskipti innlent Stærsti Hiab krani í heimi á sumarsýningu Veltis Samstarf Í áfalli yfir dýrari dekkjum og Hlöllabát Neytendur Helmingaði kostnaðinn við matarinnkaup Neytendur 96 sagt upp í hópuppsögnum í júní Viðskipti innlent Tekur við fjármálunum hjá Securitas Viðskipti innlent Karen Ýr ráðin gæðastjóri Viðskipti innlent Biðin eftir vaxtalækkun gæti lengst enn frekar Viðskipti innlent Ómar fær fyrir ferðina Neytendur Betra en ekki að viðurkenna mistökin Atvinnulíf Fleiri fréttir 96 sagt upp í hópuppsögnum í júní Tekur við fjármálunum hjá Securitas Selja fyrsta bjórinn ekki fyrr en í ágúst Karen Ýr ráðin gæðastjóri Biðin eftir vaxtalækkun gæti lengst enn frekar Minna nú á skoðun ökutækja á Ísland.is Alvotech reiknar með tíföldum tekjum Útflutningsverðmæti eldislaxins meiri en loðnunnar Opna baðstað í Kerlingarfjöllum um helgina Svekkjandi uppgjör og aðstoðarforstjórinn látinn róa Arion banki greiði Seðlabankanum 585 milljónir Rannveig hættir í Seðlabankanum Íslensk hugbúnaðarlausn greinir kolefnisspor innkaupa fyrirtækja Flýta ekki vaxtaákvörðun þrátt fyrir áköll Flestar íbúðir seljist undir eða á auglýstu verði Ýmir Örn fer frá N1 Verðbólga nú 5,8 prósent Icelandair kaupir Airbus flughermi Í maí voru 5800 atvinnulausir Snúa vörn í sókn og kynna eldfjallaleið fyrir ferðamenn Andri Þór Viðskiptafræðingur ársins 2024 Hafa ekki nokkrar áhyggjur af fækkun ferða Seldu til rannsóknarrisa: „Maður þarf að vera draumóramaður“ Gugga í Gatsby kveður: „Margar konur búnar að skæla hérna inni“ Wok on-veldið falt Unnur vaktar fjármálin í Danmörku Húrra Reykjavík opnar á Keflavíkurflugvelli Bein útsending: Kynna yfirtökutilboðið Gefa út kynjað skuldabréf Sóttu rúman milljarð í fjármögnun Sjá meira