Stjórnarformaður olíurisa látinn eftir fall út um sjúkrahúsglugga Atli Ísleifsson skrifar 1. september 2022 08:17 Vladimír Pútín Rússlandsforseti og Ravil Moganov, stjórnarformaður Lukoil, árið 2019. Lukoil Ravil Maganov, stjórnarformaður rússneska olíu- og gasrisans Lukoil, er látinn eftir að hafa fallið út um glugga á sjúkrahúsi í rússnesku höfuðborginni Moskvu í morgun.
Reuters og Interfax hafa þetta eftir heimildarmönnum sínum, en fréttirnar hafa ekki fengist staðfestar af opinberum aðilum. Atvikið á að hafa átt sér stað í morgun og var lögregla kölluð út á staðinn. Reuters hefur reynt af ná tali af talsmönnum Lukoil í morgun en án árangurs. Enn liggur ekki fyrir hvort að um slys hafi verið að ræða eða ekki. Lukoil er með höfuðstöðvar í Moskvu og er næststærsta olíufélag landsins á eftir Gazprom, og það stærsta sem ekki er í ríkiseigu. Auk þess að vera stjórnarformaður Lukoil starfaði Maganov sem aðstoðarforstjóri félagsins. Skömmu eftir upphaf innrásar Rússlands í Úkraínu í lok febrúar síðastliðinn voru forsvarsmenn Lukoil í hópi fárra í Rússlandi sem gagnrýndu innrásina opinberlega. Í fréttatilkynningu frá félaginu, sem send var út 3. mars, hvatti stjórn félagsins, sem Ravil Maganov hefur stýrt, til þess að stöðva þá „hörmulegu atburði sem ættu sér stað í Úkraínu“.
Rússland Innrás Rússa í Úkraínu Andlát Bensín og olía Mest lesið Sádar sagðir hafa sent fjórar viðvaranir Erlent Skutu niður eigin herþotu yfir Rauðahafi Erlent „Þú veist að ég er sú sem að passar best hérna inn“ Innlent „Ég fæ ekki séð hvaða rugl þetta er“ Innlent „Kurr í greininni í dag um að þetta skuli hvort tveggja vera á matseðlinum“ Innlent Fyrsti læknirinn í heilbrigðisráðuneytinu Innlent „Ég veit að þér mun sömuleiðis líða vel hér“ Innlent Yfirgaf jólatónleika í sjúkrabíl Innlent „Ein allra besta jólagjöfin“ Innlent Færeyingar fagna tvennum göngum Erlent Fleiri fréttir Sádar sagðir hafa sent fjórar viðvaranir Skutu niður eigin herþotu yfir Rauðahafi Færeyingar fagna tvennum göngum Íslenskur skurðlæknir hlúir að fólki í Magdeburg Mótmælt á meðan minningarathöfn stóð yfir „Þetta var gjörsamlega hræðilegt“ Fimm látnir og tvö hundruð særðir Koma naumlega í veg fyrir stöðvun ríkisreksturs Fimmtugur geðlæknir ók bílnum Heyrðu í þyrlum og öskrum út um gluggann Bifreið ekið á hóp fólks á jólamarkaði Hefja aftur leit að MH370 rúmum tíu árum eftir hvarfið Vara við upprisu ISIS Sjö ára stúlka stungin til bana í skóla Zagreb Eins og Pelicot hafi geymt glæpina á hörðu drifi í huga sínum Repúblikanar höfnuðu fjárlagafrumvarpi sem Trump studdi Sænskur rappari skotinn til bana í bílastæðahúsi Skoða hvort stunguárás hafi átt að líkjast morðinu í New York Mangione líka ákærður af alríkissaksóknurum Saksóknari sagður óhæfur í síðasta málinu gegn Trump Þrjátíu og fimm börn tróðust undir á jólahátíð Danskt sjúkrahús kært til lögreglu vegna tilrauna á ungum drengjum Musk og Trump valda uppnámi í Washington Skorar vestrið á hólm í 21. aldar einvígi Vaktin: Dominique Pelicot dæmdur í tuttugu ára fangelsi Hætta að rukka í almenningssamgöngurnar Dómar yfirvofandi í máli Pelicot Ætla að birta Gaetz-skýrsluna eftir allt saman Hæstiréttur staðfestir dóm yfir Sarkozy Segir sýrlensku þjóðina þreytta og vilja fá að lifa í friði Sjá meira