Sjö mörk er Bayern burstaði botnlið Bochum Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 21. ágúst 2022 17:49 Þýskalandsmeistarar Bayern München unnu vægast sagt sannfærandi sigur í dag. Lars Baron/Getty Images Þýskalandsmeistarar Bayern München lentu ekki í neinum vandræðum er liðið heimsótti Bochum í þýsku úrvalsdeildinni í kanttspyrnu í dag. Gestirnir unnu vægast sagt afar sannfærandi sigur, 0-7.
Leroy Sane skoraði fyrsta mark gestanna strax á fjórðu mínútu áður en Matthijs de Ligt tvöfaldaði forystu Bayern tuttugu mínútum síðar. Kingsley Coman bætti svo þriðja marki liðsins við eftir rúmlega hálftíma leik og fimm mínútum síðar skoraði Sadio Mané fjórða mark liðsins. Mark Mané var þó dæmt af þar sem leikmaðurinn handlék knöttin í aðdraganda marksins, en það kom ekki að sök því Mané skoraði svo löglegt mark á 42. mínútu og staðan því 0-4 þegar flautað var til hálfleiks. Mané var svo aftur á ferðinni eftir um klukkutíma leik þegar hann breytti stöðunni í 0-5 og níu mínútum síðar var staðan orðin 0-6 eftir að Cristian Gamboa varð fyrir því óláni að setja boltann í eigið net. Það var svo Serge Gnabry sem rak seinasta naglann í kistu heimamanna þegar hann skoraði sjöunda mark Bayern á 76. mínútu og lokatölur því 0-7. Bayern er því enn með fullt hús stiga eftir þrjá leiki á toppi þýsku úrvalsdeildarinnar, en Bochum er á botninum án stiga.
Þýski boltinn Mest lesið Konurnar aftur fleiri og sex fædd eftir 2000: Topp tíu listinn í ár Sport Rashford á lausu yfir jólin Fótbolti Óvænt úrslit á HM í pílu í kvöld Sport Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark Fótbolti Salah sló þrjú met í dag Fótbolti Charlie Woods fór holu í höggi í fyrsta sinn Golf Logi frá FH til Króatíu Fótbolti Dagskráin í dag: Það er pílan Sport Cullen stormaði út af blaðamannafundi Sport Wagner með slitið krossband og úr leik út tímabilið Körfubolti Fleiri fréttir Mætir á leik í fyrsta sinn eftir að hjartað stoppaði Logi frá FH til Króatíu Rashford á lausu yfir jólin Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark „Við vorum taugaóstyrkir“ Salah sló þrjú met í dag Semur við félagið sem bæði mamma og pabbi spiluðu fyrir Everton hjálpaði sér og nágrönnunum í Liverpool Útsalah á mörkum í Lundúnum Martröð hjá Manchester United í leikhúsi draumanna Drottning Lengjudeildarinnar ætlar að vera með Fram í Bestu Öruggt hjá Real Madrid gegn Sevilla Liverpool liðið ferðast mest yfir jólin Fjórar knattspyrnukonur handteknar Jackson komst upp fyrir Eið Smára Heiður að vera keypt á metfé frá Val: „Stórt og gott skref“ Sara Björk á skotskónum í Sádi-Arabíu Skallaði þjálfara andstæðinganna eftir leik Endar Rashford í Sádí-Arabíu? Saka yfirgaf Selhurst Park á hækjum Bellingham tryggði Sunderland sigurinn Atletico rændi sigrinum í blálokin Juric tekinn við Southampton Arsenal valtaði yfir Crystal Palace Isak með þrennu í stórsigri Newcastle Haaland: Ég hef ekki verið nógu góður Gumma komin heim eftir átta ára fjarveru Guardiola: Við erum í vandræðum með að skora Lengi getur vont versnað hjá Man. City Hólmbert og félagar náðu ekki að vinna fallslaginn Sjá meira