Skoða það að taka Freyju af lífi Bjarki Sigurðsson skrifar 12. ágúst 2022 00:02 Freyja hefur sökkt nokkrum smábátum í höfnum Noregs. Yfirvöld í Noregi eru nú með það til skoðunar hvort það eigi að taka rostunginn Freyju af lífi. Freyja hefur upp á síðkastið tekið sér lúr í bátum í höfnum Noregs og sökkt einhverjum þeirra í leiðinni.
Rostungurinn Freyja hefur vakið mikla athygli í Noregi en nýlega kom hún sér fyrir í smábátahöfn nærri Osló og þar hefur hún sökkt nokkrum bátum. Oftar en ekki hefur það þó verið óviljaverk þar sem talið er að Freyju finnist bátarnir svo líkir steinum og hún vilji einungis fá að leggja sig í friði. Bátarnir eru ekki allir nægilega sterkir til að halda sér á floti þegar sex hundruð kílóa rostungur skríður upp í. Um miðjan júlí varaði Fiskistofa Noregs fólk við því að nálgast Freyju of mikið þar sem talið væri að ef hún teldi sér vera ógnað gæti hún brugðist illa við. Fiskistofan sagði einnig að það kæmi ekki til greina að drepa Freyju. Nú, rúmum þremur vikum seinna, hafa Norðmenn þó tekið aðra stefnu í málinu. Verið er að skoða hvort það eigi að aflífa hana. Frægð hennar hefur orðið henni að falli og það að allir vilji taka mynd með henni hefur skapað hættu. Það að ferðamenn geti ekki látið hana vera gæti orðið til þess að hún verði drepin. Dýralæknar telja að Freyja sé ekki að fá nægilega hvíld og að hún sé að verða ansi stressuð en hún verður enn stressaðri þegar stórir hópar nálgast hana. Áreiti gæti því mögulega orðið til þess að Freyja ráðist á fólk.
Dýr Noregur Tengdar fréttir Vara áhugasama við því að nálgast rostunginn Freyju Fiskistofa Noregs varaði í morgun fólk við því að nálgast frægan rostung of mikið. Rostungurinn Freyja hefur verið að valda usla í smábátahöfn skammt frá Osló þar sem hún hefur meðal annar sökkt bátum. Ekki kemur til greina að drepa Freyju. 20. júlí 2022 15:30 Mest lesið Egill syrgir brottvísun vina sinna Innlent Ölvaður ökumaður keyrði á umferðareyju og reyndi að flýja Innlent „Hreint og klárt vistmorð sem hér á sér stað“ Innlent Segir Akranes verða svefnbæ Innlent Útilokar ekki kosningu en Jón vill kjósa áður en það verður of seint Innlent Reikna með að hefja formlegar sameiningarviðræður í haust Innlent N1-mót og Dyrfjallahlaup í skítaveðri Innlent Allt að tuttugu stiga hiti í dag Veður Þyrla kölluð út vegna bifhjólaslyss á Vestfjörðum Innlent Viðsnúningur í frönsku þingkosningunum Erlent Fleiri fréttir Viðsnúningur í frönsku þingkosningunum Frakkar ganga til sögulegra kosninga Sextán drepnir í loftárás á skóla Skortur á Ozempic hefur leitt til ólöglegrar starfsemi Nefna Mílanóflugvöll í höfuðið á Berlusconi Beryl lék Mexíkó grátt Umbótasinni bar sigur úr býtum í Íran Heitir því að klára baráttuna og sigra Trump Reeves skipuð fjármálaráðherra fyrst breskra kvenna Sunak segir af sér og hættir sem leiðtogi Tímamót í samningaviðræðum en enn langt í land Stórsigur Verkamannaflokksins á kostnað Íhaldsflokksins Kæmi mjög á óvart sigri annar flokkur en Verkamannaflokkurinn Verkamannaflokkurinn með stórsigur samkvæmt útgönguspám Baktalaði Biden í golfi: „Gamla niðurbrotna skítahrúga“ Kristrún og félagar sækja atkvæði fyrir Verkamannaflokkinn Enn má pissa í sjóinn á Costa del Sol Uppsagnir á Skaganum og Bretar kjósa nýja valdhafa Hryðjuverkamaðurinn í Ósló fær þyngsta dóm sögunnar Bretar ganga að kjörborðinu Neil Gaiman sakaður um kynferðisofbeldi Trump eykur forskotið og Biden ekki á förum Þvertaka fyrir að Biden sé efins um framboð Ákærður fyrir árásina á Mette Frederiksen Ákærðir fyrir að hafa fellt tré með banvænum afleiðingum Maður á þrítugsaldri stunginn til bana í Kaupmannahöfn Gert að eyða gjafasæði vegna mistaka við merkingu Beryl við það að skella á Jamaíku Sá fyrsti sem kallar eftir því að Biden stígi til hliðar Friðhelgin stórauki vald forsetans Sjá meira
Vara áhugasama við því að nálgast rostunginn Freyju Fiskistofa Noregs varaði í morgun fólk við því að nálgast frægan rostung of mikið. Rostungurinn Freyja hefur verið að valda usla í smábátahöfn skammt frá Osló þar sem hún hefur meðal annar sökkt bátum. Ekki kemur til greina að drepa Freyju. 20. júlí 2022 15:30