Listapúkinn býður á fjörlega og litríka sýningu Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 5. ágúst 2022 14:01 Þórir Gunnarsson, jafnan þekktur sem Listapúkinn, stendur fyrir sinni sjöundu sýningu sem opnar í dag. Aðsend Listamaðurinn Þórir Gunnarsson opnar nýja sýningu í Listasal Mosfellsbæjar í dag en opnunin fer fram frá klukkan 16:00-18:00 og boðið verður upp á léttar veitingar.
Þórir gengur undir listamannsnafninu Listapúkinn en sýningin ber nafnið Sýning Listapúkans. Hér er á ferðinni afkastamikill listamaður og er um að ræða hans sjöundu sýningu á síðastliðnum tíu árum. Verk eftir Þóri Gunnarsson, Listapúkann. Þórir er Mosfellingur í húð og hár ásamt því að vera núverandi bæjarlistarmaður. Því má með sanni segja að það sé við hæfi að Þórir sýni í Listasal Mosfellsbæjar. Ævintýralegt og framandi í bland við hversdagsleikann Verk Þóris eru fjörleg og litrík og hver mynd segir sögu. Sýningu Listapúkans er skipt upp í fjögur þemu: Dýramyndir, mannlýsingar og umhverfi, myndir frá Prag og nýjar myndir. Viðfangsefnið er stundum ævintýralegt og framandi en stundum er það hversdagsleikinn í umhverfi listamannsins sem er festur niður á blað. Myndirnar frá Prag eru innblásnar af ferð sem Þórir fór síðastliðinn maí með Myndlistaskólanum í Reykjavík. Verkin sem tilheyra flokknum nýjar myndir eru enn nýlegri en það, jafnvel aðeins nokkurra daga gömul, en í fréttatilkynningu segir að Þórir sé sístarfandi, enda afkastamikill í list sinni. Verk Þóris eru fjörug og litrík en hvert verk segir sögu. Síðasti sýningardagur er 2. september næstkomandi. Listasalur Mosfellsbæjar er staðsettur inn af Bókasafni Mosfellsbæjar, Þverholti 2. Opið er frá klukkan 9-18 alla virka daga og 12-16 á laugardögum. Gott hjólastólaaðgengi er að salnum. Öll hjartanlega velkomin.
Myndlist Menning Tengdar fréttir „Hér munu hlutir fæðast“ Listakonan Júlíanna Ósk Hafberg opnar svokallað pop-up stúdíó og gallerí að Bankastræti 12. Hún fagnaði þrítugs afmæli sínu í síðustu viku og í tilefni af því mun hún halda sameiginlegt afmælisteiti og opnun á galleríinu í dag frá klukkan 17:00-20:00. Blaðamaður tók púlsinn á Júlíönnu og fékk að heyra nánar frá. 4. ágúst 2022 11:01 Mest lesið Rauðhærðir í brennidepli á vel sóttum írskum dögum Lífið Jon Landau er látinn Bíó og sjónvarp Eins söguleg og skáldsaga getur orðið Lífið Laufey í banastuði í Reykjavík Lífið Sauð upp úr í stjörnufansi á golfmóti Coolbet Lífið Emmsjé Gauti laumaði sér á Landsmót fyrir tónlistarmyndband Lífið „Þetta er enginn helvítis félagskvíði, það bara þolir mig enginn“ Áskorun Setti sér markmið og hóf veitingarekstur átján ára Lífið Alltaf sótt í orku og gleði í klæðaburði Tíska og hönnun „Þú gleymir fólki sem þú hefur elskað allt þitt líf“ Lífið Fleiri fréttir Fjöldamet á stærstu listasýningu í sögu Hornafjarðar „Hluti af heild sem við skiljum ekki“ Magnús Geir endurráðinn þjóðleikhússtjóri „Ef ég væri einmana myndi ég ganga í Sjálfstæðisflokkinn“ Myndaveisla: Níu líf of stórkostleg fyrir eftirsjá Þau eru tilnefnd til Ísnálarinnar í ár Hvað eigum við að kalla eiginmann forseta? Sjá meira
„Hér munu hlutir fæðast“ Listakonan Júlíanna Ósk Hafberg opnar svokallað pop-up stúdíó og gallerí að Bankastræti 12. Hún fagnaði þrítugs afmæli sínu í síðustu viku og í tilefni af því mun hún halda sameiginlegt afmælisteiti og opnun á galleríinu í dag frá klukkan 17:00-20:00. Blaðamaður tók púlsinn á Júlíönnu og fékk að heyra nánar frá. 4. ágúst 2022 11:01