Lífið

Hataðasti maðurinn á netinu: „Ég skulda engum neitt“

Elísabet Hanna skrifar
Hunter Moore öðlaðist frægð á sínum tíma fyrir það að reyna að eyðileggja líf fórnalamba sinna.
Hunter Moore öðlaðist frægð á sínum tíma fyrir það að reyna að eyðileggja líf fórnalamba sinna. Skjáskot/Youtube/Netflix

Netflix gaf nýlega út heimildarþættina „Most Hated Man on the Internet“ eða „Hataðasti Maðurinn á Veraldarvefnum“ þar sem farið er yfir sögu Hunter Moore sem varð frægur á sínum tíma fyrir að stofna vefsíðuna IsAnyoneUp.com sem birti hefndarklám en nú hefur hann tjáð sig um málið.

*Höskuldarviðvörun*

Leikstjóri heimildaþáttanna er Rob Miller en í þeim segir hann segir sögur kvenna sem lentu í því að vera hakkaðar af Hunter og samstarfsfélaga hans Charlie Evans og hvað leiddi til þess að þeir voru fangelsaðir.

Hunter réði Charlie til þess að brjótast inn í tölvupóst kvenna, finna nektarmyndir af þeim og selja sér þær. Í kjölfarið birti Hunter myndirnar á heimasíðu sinni IsAnyoneUp.com ásamt upplýsingum um konurnar. Síðunni var lokað fyrir nokkrum árum síðan. Upphaflega kynntust þeir þegar Charlie braust inn á aðgang Hunter sem hafði samband í kjölfarið og bað hann um að vinna fyrir sig. 

Ætlaði ekki að láta hann sleppa

Hunter sjálfur kemur ekki fram í þáttunum sem um ræðir, þrátt fyrir að hafa upphaflega ætlað að taka þátt í verkefninu. Birtar eru klippur úr fyrri viðtölum sem hann fór í sem sýna hvernig mann hann hafði að geyma á þeim tíma sem hann hélt úti síðunni. Orðið siðlaus virðist einkenna framkomu hans á þeim tíma samkvæmt þeim aðilum sem koma fram í myndinni. 

Saga Charlotte Laws er þungamiðja þáttanna en dóttir hennar lenti í því að vera hökkuð, myndum stolið og þær birtar á síðunni. Í framhaldinu varð það markmið Charlotte að taka vefsíðu Hunters úr umferð, meðal annars með aðstoð FBI. 

James McGibney rakst einnig á heimasíðuna hans og setti sér sama markmið og Charlotte. Honum tókst ætlunarverkið að lokum með aðstoð Anonymous hópsins sem hafði samband og vildi aðstoða.

Mættur á Tik Tok

Eftir að þættirnir fóru í loftið birti Hunter myndband af sér á miðlinum Tik Tok þar sem hann sagði eftirfarandi: „Ég heiti Hunter Moore. Ég bjó til síðuna IsAnyoneUp.com.. mjög umdeilda vefsíðu snemma á 21. öldinni. Vefsíðan vakti heilmikla athygli á einni nóttu og ég var hálfgert fífl, svo öðlaðist ég líka mikla frægð. Svo ef þú elskar mig eða hatar mig, farðu að horfa á þá. Láttu mig vita hvað þér finnst. Settu inn athugasemd og við skulum rökræða það hér að neðan.“

Samkvæmt yfirlýsingunni virðist hann enn á ný vera að sækjast eftir sviðsljósinu. 

Mynd á Youtube

Í apríl á þessu ári kom einnig út stutt heimildarmynd um Hunter Moore frá Vice á Youtube sem sjá má hér að neðan. Á þeim tíma var Hunter enn með virkan Twitter aðgang og sagði eftirfarandi: „Í gær gerði Vice litla heimildarmynd og hlóð henni upp á YouTube rásina sína og lét mig líta illa út,“ svo bætti hann við:

„Sjáið til krakkar, ég fór á bak við lás og slá. Ég lifi lífi mínu friðsamlega núna, Það er áratugur síðan … sum ykkar elska mig og flest ykkar hata mig.“ Hann endaði á því að útskýra hvers vegna hann mun ekki biðjast afsökunar á IsAnyoneUp.com. „Ef þú vilt að ég biðjist afsökunar, ég mun ekki gera það.“

„Ég skulda engum neitt.“

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.