Lífið

Stjörnulífið: Þjóðhátíð, ástin og brjóstagjöf

Elísabet Hanna skrifar
Hápunktur vikunnar á samfélagsmiðlum var Þjóðhátíð.
Hápunktur vikunnar á samfélagsmiðlum var Þjóðhátíð. Skjáskot/Samsett

Stjörnulífið þessa vikuna náði hápunkti um helgina þar sem Íslendingar skemmtu sér um land allt á fjölbreyttan hátt í tilefni Verslunarmannahelgarinnar. Klara Elias samdi og flutti Þjóðhátíðarlagið í ár sem hefur slegið í gegn og Magnús Kjartan Eyjólfsson kom sá og sigraði í brekkusöngnum. 

Friðrik Ómar segir æðislegt að koma út úr skápnum og hvetur fleiri til þess.

Söngkonurnar Ragga Gísla og Birgitta Haukdal settu allt á hliðina þegar þær stigu á svið um helgina.

Það ætlaði allt að verða vitlaust þegar Herra Hnetusmjör kom fram í Herjólfsdal á sunnudeginum. Hugo birtist sem leynigestur í bol merktum Stöð 2 með dagsetningunni 28. september.

Bubbi og Bríet komu fram saman á Þjóðhátíð þar sem allur dalurinn fékk gæsahúð. 

Lífið var yndislegt hjá Hreimi í Eyjum um helgina.

Fm95Blö setti stemninguna upp á næsta stig í Vestmannaeyjum. 

Magni, Auddi og Steindi voru ferðafélagar.

Áhrifavaldurinn Camilla Rut skellti sér í Herjólf: „Mamma er mætt í dalinn elskurnar,“ tilkynnti hún fylgjendum sínum. 

Kærastanum hennar Birgittu Lífar tókst á einhvern ótrúlegan hátt að fá hana til þess að gista í tjaldi á Þjóðhátíð, ástin er mögnuð.

Áður en Bríet gerði allt vitlaust í Dalnum um helgina kom hún fram á öðrum stöðum landsins. 

Páll Óskar skein skært á Sjallanum Akureyri.

Tónlistarmaðurinn Ásgeir Orri var geðveikt fínn gaur og tók lagið með Steinda í dalnum.

Reykjavíkurdætur tróðu upp á stóra sviðinu. 

Emmsjé Gauti naut restarinnar af helginni með fjölskyldunni eftir að hafa dregið brekkuna á dansgólfið á föstudeginum.

Athafnakonan Sylvía Friðjónsdóttir fór að veiða síli með fjölskyldunni. 

Áhrifavaldurinn Guðrún Veiga rifjaði upp gamlar og góðar minningar frá Reyðarfirði: Þegar hún kveikti í eldhúsinnréttingunni við að poppa, læsti sig úti og braust inn um gluggann, kveikti í hárinu á sér og einnig þegar hún datt á andlitið og braut framtennurnar. 

Leikarinn Aron Mola eyddi helginni í Heimaey.

Söngkonan Svala Björgvins og kærastinn hennar Alexander fóru á Lunga um daginn. Parið er duglegt að hafa gaman saman og sáust þau á Þjóðhátíð um helgina. 

Sunneva Einarsdóttir nýtur lífsins á Grikklandi þar sem er ekki lopapeysuveður.

Athafnakonan Elísabet Gunnarsdóttir átti notalega Verslunarmannahelgi með fjölskyldunni í sveitinni.

Fatahönnuðurinn Andrea Magnúsdóttir var klædd fyrir tilefnið á frídegi verslunarmanna líkt og allaf.

Söngkonan Þórunn Antonía fagnaði þriggja ára afmæli sonar síns.

Kolbrún Pálína skoðaði landið með fjölskyldunni sinni.

Erna Kristín var ekkert að flækja plön helgarinnar.

Vinirnir og leikararnir Björn Hlynur og Gísli Örn njóta sín saman á Ítalíu.

Áður en Steindi reif sig úr að ofan í dalnum æfði hann sig á ströndinni í fríi með fjölskyldunni.

Crossfit stjarnan Sólveig Sigurðardóttir mun keppa á sínum fyrstu heimsleikum.

Katrín Tanja fann manneskju sem gerir lífið sitt betra og er það Brooks Laich. 

Björgvin K. Guðmundsson mun einnig keppa á heimsleikunum í crossfit.

Katrín Jakobsdóttir skellti sér í útifötin og gerði það besta úr íslenska sumrinu.

Þórdís Kolbrún heiðraði landið með sínu fatavali á Íslendingahátíð í Norður Dakóta. 


Tengdar fréttir

Stjörnulífið: Brúðkaup, boltinn og folar

Ástin er allsráðandi í Stjörnulífinu þessa vikuna en brúðkaup og brúðkaupsafmæli voru á hverju strái ásamt „babymoon“ á Spáni, folum í sveitinni og listafólk landsins í skemmtilegum ferðum. Þar að auki eru stelpurnar okkar sáttar eftir að hafa gefið sig allar í EM keppnina.

Stjörnulífið: Ástin og ævintýrin svifu yfir vötnum

Þó svo að sólin hafi kannski ekki látið fara mikið fyrir sér í síðustu viku skinu stjörnurnar skært enda nóg um að vera. Sumarið er tími allskyns fögnuða og ferðalaga og má segja að ástin og ævintýrin hafi svo sannarlega svifið yfir vötnum þessa vikuna.

LXS raun­veru­leika­þættir á leiðinni

Nýir íslenskir raunveruleikaþættir þar sem fylgst verður með lífi samfélagsmiðlastjarnanna í LXS vinkonuhópnum eru væntanlegir á Stöð 2 í haust. Hópurinn samanstendur af þeim Birgittu Líf, Ástrós Trausta, Magneu Björg, Sunnevu Einars og Ínu Maríu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.