Innlent

Snarpur skjálfti fannst á höfuð­borgar­svæðinu

Elísabet Inga Sigurðardóttir og Magnús Jochum Pálsson skrifa
Líklegt er að skjálftinn eigi upptök sín við Fagradalsfjall.
Líklegt er að skjálftinn eigi upptök sín við Fagradalsfjall. vísir/vilhelm

Snarpur jarðskjálfti að stærð 3,1 reið yfir klukkan 18:03 og fannst vel á Suðurlandsbraut, þaðan sem þessi frétt er skrifuð. Samkvæmt sjálfvirkum mælingum á vef Veðurstofunnar átti hann upptök sín 1,2 kílómetra suðvestan af Keili.

Aðeins tíu mínútum áður, klukkan 17:52, reið yfir enn stærri skjálfti sem var 3,9 að stærð sem margir hafa eflaust fundið fyrir.

Skjálftarnir í yfirstandandi jarðskjálftahrinu hafa verið innar á Reykjanesskaga en í hrinunni fyrir ári síðan. Íbúar höfuðborgarsvæðisins hafa því fundið vel fyrir virkninni.

Grindvíkingar hafa þó eflaust fundið mest fyrir jarðskjálftahrinunni en eftir skjálfta að stærð 5,4 sem reið yfir rétt fyrir sex í gærkvöldi var mikið tjón í bænum, kaldavatnslögn rofnaði og hrundu hlutir úr hillum.

Fréttin verður uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×