Innlent

Stóð af sér vatnavextina

Eiður Þór Árnason skrifar
Svona var staðan við brúnna yfir Jökulsá á Sólheimasandi í gær.
Svona var staðan við brúnna yfir Jökulsá á Sólheimasandi í gær. Vegagerðin

Ekki þurfti að loka bráðabirgðabrúnni yfir Jökulsá á Sólheimasandi þrátt fyrir mikla vatnavexti síðustu sólarhringa en á þriðjudag varaði Vegagerðin við því að óljóst væri hvort brúin myndi standa af sér vatnsflauminn.

Bjargaði það brúnni að grafa djúpa rás í árfarveginn þannig að meira vatn kæmist undir brúnna en ráðist var í þær aðgerðir þegar ljóst var í hvað stefndi.

Mikil úrkoma hefur verið á sunnanverðu landinu og gaf Veðurstofan úr gula viðvörun vegna þessa. Þá var Vegagerðin með sérstakt eftirlit með brúm og vegum á hringveginum.

Gríðarlega mikið vatn var í ám á öllu Suðurlandi, meðal annars í Jökulsá, Bakkakotsá og Svaðbælisá. Að sögn Vegagerðarinnar hefði vatnið í Jökulsá ekki mátt hækka mikið meira áður en að grípa hefði þurft til frekari aðgerða.

„Hefði farvegurinn ekki verið dýpkaður má ætla að hækkunin hefði haldið áfram með sama hraða og rjúfa hefði þurft veginn beggja vegna bráðabirgðabrúarinnar. Til þess kom ekki og er ástandið nú orðið eðlilegt,“ segir á vef Vegagerðarinnar.

Um klukkan 16 þann 26. júlí má sjá lækkunina sem var tilkomin vegna þess að árfarvegurinn var dýpkaður. Síðan hækkar jafnt og þétt þar til það verður skörp hækkun að morgni 27. júlí. Lítið lón fyrir framan sporð Sólheimajökuls tempraði hækkunina lítilega og tafði hana.Vegagerðin

Unnið er að smíði nýrrar brúar við Jökulsá á Sólheimasandi og á meðan er umferð beint um hjáleið og umrædda bráðabirgðabrú.

Bráðabirgðabrúin er reist á 12 metra löngum stálstaurum sem reknir eru niður í árfarveginn og var því gott svigrúm til að dýpka undir miðri brúnni.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×