Lífið

Stjörnulífið: Brúðkaup, boltinn og folar

Elísabet Hanna skrifar
Stjörnulífið er fullt af ást þessa vikuna.
Stjörnulífið er fullt af ást þessa vikuna. Samsett/Instagram

Ástin er allsráðandi í Stjörnulífinu þessa vikuna en brúðkaup og brúðkaupsafmæli voru á hverju strái ásamt „babymoon“ á Spáni, folum í sveitinni og listafólk landsins í skemmtilegum ferðum. Þar að auki eru stelpurnar okkar sáttar eftir að hafa gefið sig allar í EM keppnina.

Poppstjarnan og nú rokkarinn Birgitta Haukdal tók lagið með Skálmöld á Bræðslunni. Samstarfið kom gestum hátíðarinnar á óvart og vakti mikla lukku. 

Jón Jónsson skoðar heiminn með fallegu fjölskyldunni sinni og segjast þau mæla heilshugar með spænska smábænum Tossa de Mar.

Þjálfarinn og dansarinn Sandra Björg Helgadóttir giftist Hilmari Arnarsyni við fallega athöfn um helgina. Í veislunni hélt Herra Hnetusmjör uppi stuðinu á meðan gestir dönsuðu og skemmtu sér. 

Athafnakonan Birgitta Líf og kærastinn hennar Enok Jónsson mættu meðal annarra góðra gesta í brúðkaupið hjá Söndru og Hilmari og tók hún nokkur spor með vinkonu sinni í veislunni. 

Ilmur Kristjánsdóttir og Magnús Viðar Sigurðsson giftu sig einnig um helgina við fallega athöfn í Ásbyrgi. 

Leikkonan og grínistinn Saga Garðarsdóttir og tónlistarmaðurinn Snorri Helgason fögnuðu einnig ástinni með Ilmi og Magga og var hún „græn og gordjöss“ í góðra vina hóp.

Leikkonan Nína Dögg Filippusdóttir og eiginmaður hennar Gísli Örn fóru í Hestaferð þar sem fjörið hófst í Hofi og endaði á hestbaki. 

Áslaug Arna var einnig á svæðinu og naut vel.

Herra Hnetusmjör skellti sér á pokermót eftir að hafa gefið út lagið Sjáðu mig nú fyrr í vikunni.

Hildur Björnsdóttir og Jón Skaftason hafa haldið ástinni lifandi í áratug.

Hönnuðurinn Andrea Magnúsdóttir og maðurinn hennar Ólafur Ólafsson fara saman hlið við hlið í gegnum lífið. 

Söngkonan María Ólafsdóttir nýtur sín vel í móðurhlutverkinu.

Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens er óstöðvandi í markmiði sínu „að deyja í formi“ líkt og hann lýsti yfir á Instagram fyrir nokkrum vikum síðan. 

Hreimur hitaði upp fyrir Þjóðhátíð á Fáskrúðsfirði.

Tónlistarmaðurinn Magni Ásgeirsson naut sín á Bræðslunni og virðist hafa náð gæðastund með öllum á svæðinu.

Fyrrum fótboltamaðurinn Rúrik Gíslason tók til starfa sem dómari og leiðbeinandi í pólska Top Model enda býr hann yfir mikilli visku og reynslu þegar kemur að fyrirsætustörfum. 

Sunneva Einarsdóttir skellti sér í svart frá toppi til táar. 

Selma Björnsdóttir birti mynd af þessu glæsilega glamúr teymi. Það geta ekki allir verið svona gordjöss.

Elísabet Gunnarsdóttir og Gunnar Steinn Jónsson hafa það gott í „babymoon“ á Spáni.

Tónlistarkonan Hildur prófar sig áfram með nýja sídd á hárinu og fær innblástur úr öllum áttum.

Áhrifavaldurinn Erna Hrund Hermannsdóttir er glæsileg í beige. Hún hefur rætt það á Instagram miðli sínum hvernig hún er að finna sinn stíl á ný eftir meðgöngu og virðist vera á réttri leið. 

Frumkvöðullinn og áhrifavaldurinn Tanja Ýr reyndi að kæla sig á ströndinni í hitabylgjunni. 

Fótboltakonan Sara Björk er þakklát fyrir fólkið sitt.

Salka Sól og Arnar Freyr voru veislustjórar í brúðkaupi hjá vinum sínum. 

Júlí Heiðar skellti sér með Þórdísi Björk og Árna Beinteini í Skógarböðin. 

Fótboltakonan Sveindís Jane er ánægð með liðið sitt sem gerði sitt allra besta á EM.

Dagný Brynjarsdóttir skapar ógleymanlegar minningar með syni sínum á EM. 

Karólína Lea féll í faðm fjölskyldunnar eftir að hafa gefið allt sitt á vellinum. 

Ólafur Darri vakti ekki mikla lukku hjá hundinum Vöfflu þar sem hann var að ferðast um landið með Ben Stiller og fjölskyldu. 

Leikkonan Íris Tanja kom fram með hljómsveitinni Hatara í Bretlandi.


Tengdar fréttir

Stjörnulífið: Ástin og ævintýrin svifu yfir vötnum

Þó svo að sólin hafi kannski ekki látið fara mikið fyrir sér í síðustu viku skinu stjörnurnar skært enda nóg um að vera. Sumarið er tími allskyns fögnuða og ferðalaga og má segja að ástin og ævintýrin hafi svo sannarlega svifið yfir vötnum þessa vikuna.

Stjörnulífið: „Hégóminn er harður húsbóndi“

Vikan var full af útihátíðum, ferðalögum og notalegum stundum en innihélt einnig dass af hégóma frá kónginum sjálfum. Dómararnir fyrir Idolið eru á fullu að undirbúa sig fyrir haustið og stelpurnar okkar eru á vellinum að hita upp fyrir EM.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.